Háskólanemar smíðuðu kappakstursbíl frá grunni 4. ágúst 2012 05:00 Alls 20 úr hópnum ferðuðust með bílnum á Silverstone-kappaksturbrautina í Bretlandi.
Fólk 27 manna hópur nemenda við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands tók á dögunum þátt í alþjóðlegu hönnunarkeppninni Formula Student sem fram fór á Silverstone-kappakstursbrautinni í Bretlandi. Hópurinn hefur síðustu tvö ár hannað rafknúinn kappakstursbíl en þetta var í annað sinn sem hann tekur þátt í keppninni. „Við gerðum bílinn í raun alveg upp á nýtt fyrir keppnina í ár, það var svo margt sem þurfti að bæta. Við lögðum mikla vinnu í þetta og bíllinn í ár er algjör stökkbreyting frá bílnum í fyrra,“ segir Ari Elísson, meistaranemi í iðnaðarverkfræði og einn liðsmanna. Alls 20 úr hópnum fóru til Bretlands til að taka þátt í keppninni sem skiptist í tvo hluta. Í þeim fyrri er hönnun bílsins kynnt sem og hugmyndafræði og viðskiptalíkan hópsins. Í seinni hlutanum er aksturshæfni bílsins metin en til að fá að taka þátt í þeim hluta þurfa bílarnir að standast öryggispróf. Lið frá 110 skólum tóku þátt að þessu sinni en keppnin er haldin árlega. Svo fór að rafkerfi íslenska bílsins stóðst ekki öryggispróf og fékk liðið því ekki að taka þátt í aksturshlutanum. Ari segir flesta meðlimi liðsins vera að útskrifast úr námi og því taki nýr hópur við bílnum. Bæta þurfi nokkur smáatriði en bíllinn sé þó miklu fullkomnari en bíll síðasta árs. Segist Ari eiga von á því að með lagfæringum í vetur standist hann allar kröfur á næsta ári.- mþl
Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Sjá meira