„Frekar grillað“ að fara í strætó til Eyja 4. ágúst 2012 04:30 Þau Ísold, Almar, Arnar Már og Bjarki ætla að skemmta sér konunglega í Eyjum um helgina og hlökkuðu mikið til þegar þau stigu um borð í strætisvagninn. fréttablaðið/stefán
Strætó fjölgaði aukaferðum að Landeyjahöfn í gær og fer fleiri aukaferðir frá Landeyjum á mánudag. Ferðirnar eru vel sóttar, segir þjónustufulltrúi Strætó. Allir hlökkuðu mikið til Þjóðhátíðar þegar lagt var í hann frá Mjóddinni. Strætó fór fjórar aukaferðir austur að Landeyjahöfn með þjóðhátíðargesti á leið í Herjólf í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Strætó hafa ferðirnar verið almennt vel sóttar og fullt hefur verið í nokkrar. Leið 52 ekur milli Reykjavíkur og Landeyjahafnar dag hvern en Strætó hefur fjölgað ferðum í takt við fjölgun ferða Herjólfs til Vestmannaeyja. „Það hafa verið um það bil þrjátíu manns í hverri ferð, sýnist mér,“ segir Hilmir Kolbeins, þjónustufulltrúi hjá Strætó. Hann segir fleiri hafa verið með í gær en daginn áður. „Við erum ekki með aukaferðir í dag heldur ökum við bara eftir áætlun.“ Ungmennum, sem voru á leið til Vestmannaeyja, leist vel á fararskjótann en fannst það skjóta skökku við að fara í strætó á Þjóðhátíð í Eyjum. „Það er alveg frekar grillað en ég held að það verði mjög mikil stemning,“ sagði Melkorka Kormáksdóttir, sautján ára, sem sat í strætóskýli í Mjóddinni, ásamt vinkonu sinni Berglindi Björk Kristjánsdóttur, áður en vagninn fór. Þær eru að fara á Þjóðhátíð í fyrsta sinn og hlakka mjög mikið til enda hátíðin margrómuð meðal íslenskra ungmenna sem eitt skemmtilegasta djamm sumarsins. „Við höfum ekki farið í strætó til Eyja áður,“ sagði hinn tvítugi Bjarki Björgvinsson, en hann og ferðafélagar hans, þau Ísold Antonsdóttir, Almar Þorleifsson og Arnar Már Kjartansson, ætla að fá að tjalda í garði hjá fúsum heimamanni. Ísold verður í íbúð með vinkonum sínum sem þær hafa leigt. „Ég veit eiginlega ekki af hverju ég er að gista í íbúð því maður á eftir að vera bara í dalnum,“ sagði Ísold. „Það vill enginn geyma dótið sitt þar en það vilja allir vera þar.“ Strætó mun aka nokkrar aukaferðir frá Landeyjahöfn á mánudag og þriðjudag. Hilmir hvetur þá ferðalanga sem hafa hug á að ferðast með Strætó frá Landeyjum á mánudag að panta sér miða því sætin séu nú þegar eftirsótt. „Við erum nú þegar búin að bæta við einum aukavagni og það er spurning hversu mörgum við getum bætt við til viðbótar,“ segir Hilmir. birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Sjá meira