Sakar fyrirtæki Nubos um sýndarmennsku í verkefnum 4. ágúst 2012 06:30 Forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála segir ýmislegt benda til að siglt sé undir fölsku flaggi varðandi uppbyggingu á Grímsstöðum og áhugi á ferðaþjónustu sé takmarkaður. mynd/sigga hallgríms
Forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála segir fyrirætlanir á Grímsstöðum á Fjöllum ótrúverðugar. Fulltrúar minnihlutans á Akureyri vilja að bærinn dragi sig út úr félagi um kaup á jörðinni. Formaður bæjarráðs segir bæjarfélagið ekki taka á sig neinar Edward Huijbens, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, segir fyrirætlanir kínverska fjárfestisins Huang Nubos um uppbyggingu á Grímsstöðum á Fjöllum í hæsta máta ótrúverðugar. Hann segir skoðun heimasíðna fyrirtækja Nubos, Zhongkun og Zhongkun Travel, gefa til kynna að um fals sé að ræða. „Skoðun á heimasíðum þeirra sýnir að orð vega þyngra en gerðir og sýndarmennska ræður þar ríkjum. Staðhæfingar í gögnum með verkefninu um visthæfa ferðaþjónustu (eco-tourism) eru skólabókardæmi um grænþvott og hvergi liggur neitt fyrir um fjármögnun fyrirhugaðrar uppbyggingar á Grímsstöðum annað en orð forsvarsmanna Zhongkun.“ Edward er varabæjarfulltrúi Vinstri grænna á Akureyri og sat fund bæjarráðs á fimmtudag þar sem málefni Grímsstaða voru á dagskrá. Hann vill að Akureyrarbær dragi sig út úr GáF, félagi 6 sveitarfélaga um kaup á jörðinni. „Sem sveitarstjórnarmaður þá biðla ég til meirihlutans að gera sér vandlega grein fyrir hvaða hagsmuni bærinn telur sig vera að verja með þátttöku í uppbyggingu á Grímsstöðum á Fjöllum.“ Edward segir forsvarsmenn fjárfestisins nú segjast ætla að fjármagna verkefnið allt með eigin fé. Því hafi verið lýst yfir eftir að ívilnunarnefnd hafi krafist staðfestingar lánveitenda, en upphaflega áttu 70% stofnkostnaðar að vera lánsfé. „Þetta og fleira bendir til að áhugi á ferðaþjónustu sé meiri í orði en á borði og verkefnið virðist sigla undir fölsku flaggi.“ Halla Björk Reynisdóttir, formaður bæjarráðs Akureyrar og fulltrúi L-listans, lista fólksins, segir ekkert hafa komið fram sem kalli á að bærinn dragi sig út úr verkefninu. Beðið sé samningsdraga frá GáF sem verði kynnt fyrir bæjarráði áður en skrifað verður undir nokkuð sem skuldbindur bæjarfélagið. „Við fórum inn í verkefnið með það fyrir augum að ef yrði af uppbyggingu á ferðaþjónustu fyrir austan myndum við sem samfélag hagnast á því. Við vildum styðja það á þeim forsendum og það hefur ekkert breyst.“ Njáll Trausti Friðbertsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sat einnig bæjarráðsfundinn á fimmtudag, en flokkurinn var andvígur þátttöku bæjarfélagsins í GáF. „Við vorum andvíg málinu þar sem of mörgum spurningum var ósvarað, til dæmis því hvort þetta samræmdist hlutverki okkar sem sveitarfélags.“ Njáll Trausti segir eðlilegt að það komi til skoðunar að Akureyrarbær dragi sig út úr verkefninu. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Sjá meira