Efast um þátttöku Akureyrar 4. ágúst 2012 05:00 HUANG NUBO
Vaxandi efasemdir eru um þátttöku Akureyrarbæjar í verkefni á Grímsstöðum. Fulltrúar minnihlutans vilja að bærinn dragi sig úr verkefninu. Bærinn hefur ekki skuldbundið sig segir formaður bæjarráðs. Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Akureyrar telja að endurskoða eigi þátttöku bæjarins í GáF, félagi sveitarfélaga á Norðausturlandi um kaup á Grímsstöðum á Fjöllum og leigu til kínverska fjárfestisins Huangs Nubo. Málið var á dagskrá bæjarráðs á fimmtudag, en frestað þar til drög að samningi liggja fyrir. Edward Huijbens, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, hefur miklar efasemdir um trúverðugleika fjárfestingaráforma varðandi verkefnið og hvert markmiðið sé með þátttöku Akureyrarbæjar í GáF. Edward er varabæjarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Akureyri. „Ég biðla til meirihlutans að gera sér vandlega grein fyrir hvaða hagsmuni bærinn telur sig vera að verja með þátttöku í uppbyggingu á Grímsstöðum á Fjöllum. Ég hef sannarlega áhyggjur af því að bærinn muni fara mikla sneypuför í þessu verkefni og mundi vilja að Akureyrarbær drægi sig út úr GáF.“ Halla Björk Reynisdóttir, formaður bæjarráðs, segir bæinn ekki hafa skuldbundið sig til þátttöku í verkefninu. Málið hafi verið kynnt á fundi bæjarráðs á fimmtudag og drög að samningi verði kynnt þar áður en skrifað verður undir. Ekkert hafi þó gerst sem kalli á það að bærinn dragi sig út úr ferlinu. „Það er ekki búið að samþykkja neitt. Alveg eins og ráðherra hefur sagt, það er ekkert endanlegt í þessu, þetta er bara enn þá í vinnslu.“ Njáll Trausti Friðbertsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir fjölda spurninga enn ósvarað í málinu. Flokkurinn greiddi atkvæði gegn þátttöku bæjarfélagsins í GáF og Njáll Trausti segir að álitamálum hafi fjölgað síðan þá. „Mér finnst vera mjög til skoðunar að bærinn dragi sig úr verkefninu. Það þarf að velta því fyrir sér hverjir eru raunverulegir hagsmunir Akureyrar í þessu máli, af hverju við eigum að standa í þessu.“- kóp / sjá síðu 6
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira