Vegakerfið verður ekki bætt á einum degi 6. júlí 2012 07:00 g. Pétur Matthíasson „
Vegakerfið í umsjá Vegagerðarinnar er 13 þúsund kílómetrar og þegar veghönnunarreglum er breytt segir það sig sjálft að þann sama dag verða 13 þúsund kílómetrar ekki aðlagaðir að reglum.“ Þetta segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, um fullyrðingar Ólafs Guðmundssonar, fulltrúa EuroRAP á Íslandi, í Fréttablaðinu í gær. Ólafur segir að frágangi vegriða á Íslandi sé mjög ábótavant og að Vegagerðin fylgist ekki nógu vel með áherslum yfirvalda erlendis í vegamálum. Staðlar séu ekki uppfylltir á vegum á Íslandi og lítið sé gert til að lagfæra það sem ekki uppfyllir öryggisviðmið nútímans. „Það er tóm vitleysa að menn fylgist ekki nógu vel með,“ segir G. Pétur. „Við fylgjumst einmitt mjög vel með og erum í miklu alþjóðlegu samstarfi við bæði evrópska og norræna aðila um umferðaröryggismál.“ G. Pétur bendir á að unnið hafi verið eftir nýjum veghönnunarreglum frá því að þær tóku gildi árið 2009. Nýjar reglur eru hins vegar kostnaðarsamari en þær gömlu og fjárveiting ríkisins til vegamála er takmörkuð. Gríðarlegt átak hafi þó verið gert í að lengja gömul vegrið og ganga frá vegriðsendum á öllu landinu. „Við erum með umferðaröryggisáætlun stjórnvalda sem við förum eftir og það hefur verið sett sérstakt fé í umferðaröryggi.“ Ólafur segir einnig að Ísland sé þróunarland í vegagerð en G. Pétur segir það ekki rétt. „Það er tóm firra að við séum þróunarland í vegagerð. Sérstaklega þegar komið er að umferðaröryggi. Við erum meðal þeirra fimm landa sem hafa fæst dauðaslys í umferðinni í heiminum. Það sama gildir um önnur slys.“ Þá segir G. Pétur að unnið sé markvisst að úrbótum á vegakerfinu, bæði á nýjum vegum og gömlum.- bþh
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Sjá meira