Óþekkt hverjir njóta risnufjár á Akranesi 6. júlí 2012 05:30 Frjálslega virðist farið með skráningu á útgjöldum Akraneskaupstaðar vegna gjafa og risnu. Fréttablaðið/GVA „
Þetta er ekki í lagi og ég held að það sé margt annað sem er ekki í lagi,“ segir Gunnar Sigurðsson, varaáheyrnarfulltrúi, sem fékk samþykkta tillögu í bæjarráði Akraness um að settar verði skýrar reglur um risnu, gjafir og gestamóttökur á vegum bæjarins. Í skýrslu sem endurskoðandi bæjarins gerði kemur fram að í fyrra hafi bæjarsjóður greitt 87 prósentum meira til móttöku gesta, risnu og gjafa en áætlað hafði verið. „Skráningu um tilefni risnu og gjafa er víða ábótavant og í flestum tilfellum er ekki skráð hverjir njóta. Við teljum eðlilegt að bæjarstjórn móti reglur um móttöku gesta, risnu og gjafir, þar með talið gagnvart kjörnum fulltrúum og starfsmönnum,“ segir í endurskoðunarskýrslunni þar sem fram kemur að útgjöldin til þessara liða hafi verið 5,4 milljónir króna í fyrra. Það hafi verið 2,5 milljónum umfram áætlun. Gunnar kveðst hafa óskað eftir og fengið afrit af öllum reikningum varðandi þessi mál. „Þetta virðist vera mjög handahófskennt. Með sumum reikningum eru engar skýringar,“ segir Gunnar og upplýsir að reikningarnir séu fyrir margvíslega hluti; mat og gjafir. „Það virðist vera fullt af fólki sem hefur haft heimild til þess að taka út hjá bænum og litlar skýringar sem fylgja.“ Aðspurður kveðst Gunnar, sem sjálfur var um skeið forseti bæjarstjórnar fyrir hönd Sjálfstæðisflokks, ekki telja að vanhöld á skráningu risnu og gjafa séu nýtilkomin hjá Akranesbæ. „Ég held að það hafi komið fram athugasemdir áður, en þessi endurskoðunarskýrsla hefur vanalega verið trúnaðarmál þar til núna,“ upplýsir hann. Samkvæmt samþykkt bæjarráðs á starfsmanna- og gæðastjóri Akraness að semja reglur um notkun starfsmanna bæjarins á risnu, gjöfum og móttöku gesta fyrir 15. ágúst 2012. Þá var Jóni Pálma Pálssyni bæjarritara falið að taka saman kostnað vegna þessara liða undanfarin fimm ár. Í minnisblaði sem Jón lagði fram í bæjarráði í gær segist hann taka undir að skráningu sé ábótavant. Hins vegar sé framsetning endurskoðanda á meintum umframkostnaði röng. „Þeim upplýsingum hefur margoft verið komið á framfæri við starfsmann endurskoðunarfyrirtækisins,“ segir í minnisblaðinu. Einnig kemur fram að á árunum 2006 til 2009 hafi meðalútgjöld til þessa liðar verið 13,3 milljónir króna á ári eða tvöfalt hærri en á árunum 2010 og 2011 þegar 6,6 milljónir fóru í þennan lið. Að endingu segir Jón könnun sína meðal annarra sveitarfélaga hafa leitt í ljós að þau hafi almennt ekki séð ástæðu til setningar reglna eins og þeirra sem nú sé rætt um Akranesi. gar@frettabladid.is
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fleiri fréttir Blautur dagur í flestum landshlutum Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Sjá meira