Krefst greiningar á orðum um aflimun 4. júlí 2012 05:00 Formaður Læknafélags Íslands sagði við Ríkisútvarpið að ekki kæmi á óvart að eitthvað færi úrskeiðis í þjónustu við sjúklinga. Á Landspítalanum hefðu fjárveitingar verið skornar niður um meira en 20%. frétablaðið/hari
Landlæknir skoðar, að ósk velferðarráðherra, fullyrðingar formanns Læknafélags Íslands um að fjárskortur hafi verið orsök þess að taka þurfti fót af manni. Velferðarráðherra segir ekkert hafa komið á sitt borð um málið. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur ritað Landlækni erindi og óskað eftir greiningu á ummælum Þorbjörns Jónssonar, formanns Læknafélagsins, í síðustu viku. Þorbjörn sagði í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins að svo langt hefði verið gengið í sparnaði að ekki kæmi á óvart að eitthvað færi úrskeiðis í þjónustu við sjúklinga. Ríkisútvarpið greindi frá því að maður hefði gengið á milli lækna í tvö ár áður en æxli í ökkla uppgötvaðist og skera þurfti fótinn af við hné. Það kom formanni Læknafélagsins ekki á óvart að svona gæti gerst. „Nei, það liggur í augum uppi að þegar svona mikið fjármagn fer í burtu og vinnuálagið eykst svona mikið, þá er almennt hættan á að eitthvað fari úrskeiðis óhjákvæmilega meiri,“ sagði Þorbjörn í samtali við Ríkisútvarpið. Guðbjartur segir málið ekki hafa komið á sitt borð og hefur óskað úttektar Landlæknis. Á formanninum hafi mátt skilja að niðurskurður hafi verið orsökin. „Ég óskaði eftir því að það yrði gerð athugun á því og hvort það hefði verið vegna fjárskorts að einhver óhöpp hefðu gerst, því það hafði ekki komið til mín.“ Guðbjartur segir eftirlitskerfið eiga að standa vaktina hvað varðar svona mál. Mjög komi á óvart ef læknar vinni öðru vísi nú en fyrir hrun og engin teikn séu á lofti um að niðurskurðurinn hafi leitt til slíkra hluta eins og þarna sé látið í skína. „Þegar svona fullyrðing kemur frá formanni læknafélagsins finnst mér ástæða til þess að kanna hvort þetta hefur verið athugað eða ekki og hvað býr að baki svona fullyrðingu.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Fleiri fréttir Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Umferð var beint annað vegna áreksturs undir Ingólfsfjalli „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Sjá meira