Viðræður við Svía og Finna verði innblástur 18. júní 2012 13:00 Landbúnaður José Manuel Silva Rodriguez, skrifstofustjóri landbúnaðarmála hjá framkvæmdastjórn ESB, segir að sérstaða íslensks landbúnaðar sé margþætt og að vissu leyti hliðstæð við Finnland og Svíþjóð á sínum tíma. Fréttablaðið/GVA
Skrifstofustjóri landbúnaðarmála hjá ESB segir sérstöðu Íslands liggja á mörgum sviðum. Margar hliðstæður séu við aðstæður sem Svíar og Finnar fengu sérlausnir út á á sínum tíma. Erfitt að segja hvenær landbúnaðarviðræður hefjast. Margt er líkt með aðstæðum í íslenskum landbúnaði nú og stöðu mála í Svíþjóð og Finnlandi þegar þau lönd sömdu um inngöngu í Evrópusambandið (ESB) á tíunda áratug síðustu aldar. Þetta segir José Manuel Silva Rodriguez, skrifstofustjóri landbúnaðarskrifstofu framkvæmdastjórnar ESB, í viðtali við Fréttablaðið. Silva er staddur hér landi til að kynna sér aðstæður og ræða við ráðamenn, hagsmunaaðila og bændur. Mikil áhersla hefur verið lögð á sérstöðu íslensks landbúnaðar í aðildarviðræðunum. Silva segir að sérstaða íslensks landbúnaðar sé margvísleg. „Aðstæður sem íslenskir bændur búa við, hvað varðar loftslag og landslag, eru afar sérstæðar. Þar að auki er innlendur markaður lítill, landið afskekkt og einangrað og svo er það að öllu leyti norðan við 62. breiddargráðu.“ Þar vísar Silva til sérlausnar sem Svíþjóð og Finnland fengu á sínum tíma og felst í því að ríkjunum er heimilt að veita sérstaka styrki vegna heimskautalandbúnaðar, landbúnaðar norðan við 62. breiddargráðu. Þeir styrkir geta numið allt að 35 prósentum umfram það sem öðrum aðildarríkjum er heimilt. Silva tekur þó ekki svo djúpt í árinni að segja að þær lausnir megi yfirfæra á Ísland í yfirstandandi viðræðum. „Hverjar aðildarviðræður eru einstakar þar sem reynt er að ná sátt milli þarfa ESB og umsóknarríkisins. Þegar samningaviðræður hefjast um landbúnaðarmál verða kröfur Íslands skoðaðar í grunninn. En þar sem við sjáum margar hliðstæður milli Finnlands, Svíþjóðar og Íslands, verða niðurstöður fyrri viðræðna okkur örugglega innblástur í viðræðunum við Ísland.“ Vonir hafa staðið til þess að allir samningskaflar verði opnaðir fyrir árslok, og hefur Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, meðal annars látið þau orð falla. Silva segir hins vegar erfitt að spá um slíkt. „Undirbúningurinn gengur vel og það myndi senda afar jákvæð skilaboð, en ýmsu er enn ólokið bæði hjá Íslandi og ESB. Það er því ómögulegt að segja nákvæmlega fyrir um hvenær viðræður gætu hafist.“ Ríkjaráðstefna milli Íslands og ESB verður haldin í Brussel í lok vikunnar þar sem gera má ráð fyrir að fleiri samningskaflar verði opnaðir.thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira