Landsbyggðin tapar konum 9. júní 2012 00:01 Egilsstaðir Á Austurlandi búa 89 konur á hverja 100 karla. fréttablaðið/pjetur
Konur eru alls staðar á landsbyggðinni færri en karlar, en þær hafa í meira mæli flutt burt á síðustu árum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem gerð var fyrir Byggðastofnun. Ástandið er einna verst á Austurlandi þar sem 89 konur eru á hverja 100 karla. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Suðurlandi eru um 94 konur á hverja 100 karla. Höfuðborgarsvæðið er það eina þar sem konur eru fleiri en karlar, eða 101 á hverja 100 karla. Ef aldurshópurinn 20 til 39 ára er skoðaður kemur fram enn meiri kynjamunur í sumum landshlutum, sem staðfestir að sögn skýrsluhöfundar að ungar konur hafi flust í meira mæli burt en ungir karlar. Þannig eru aðeins 86 konur á þessum aldri á Austurlandi fyrir hverja 100 karla. Á Vestfjörðum er hlutfallið svo að 89 ungar konur búa þar á hverja 100 unga karla. Ungar konur heilt yfir landið eru færri en ungir karlar, eða 96 konur fyrir hverja 100 karla. Konum í þessum aldurshópi hefur á undanförnum tíu árum fækkað í öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra. „Þrátt fyrir eða kannski ætti frekar að segja vegna mikillar uppbyggingar í kringum álversframkvæmdir á Austurlandi hefur munurinn aukist mest þar. Árið 2001 voru 94 konur á hverja 100 karla í þessum aldurshópi,“ segir í skýrslunni. Ástæður þess að konur hafa flutt í meiri mæli af landsbyggðinni en karlar eru sagðar flókin blanda af einstaklings- og skipulagsbundnum þáttum, tog- og ýtikröftum. „Hvaða leiðir sem farnar verða er þó ljóst að grípa verður til einhverra aðgerða … Ef allar konur á barneignaraldri flytja úr byggðarlaginu verður engin náttúruleg fjölgun og byggðarlögin hrynja saman innan frá.“ - þeb
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira