Tvöfölduð framleiðsla rúmast innan ramma 1. júní 2012 04:00 Viljayfirlýsing um samstarf Breta og Íslendinga í orkumálum var undirrituð á miðvikudag. Mögulegt er að skref verði stigin í því samstarfi strax í júní. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir það spennandi kost.fréttablaðið/gva
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að hægt sé að tvöfalda raforkuframleiðslu fyrirtækisins án þess að ganga gegn stefnu stjórnvalda um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Rammaáætlun þar um, auk orkustefnu stjórnvalda, gangi ekki gegn slíkri aukningu. „Það felst ekki endanleg ákvörðun í Rammaáætlun svo erfitt er að segja til um hvernig það fer. Við munum að sjálfsögðu miða okkar áætlanir við Rammaáætlunina. Við höfum sagt að við teljum að hægt sé að tvöfalda orkuframleiðslu á Íslandi á tækni- og umhverfislega fullnægjandi hátt. Ég held að það sé innan marka Rammaáætlunar, ef horft er til biðflokksins þar auk kosta sem ekki eru í Rammaáætlun,“ segir Hörður. Landsvirkjun framleiðir í dag 655 megavött af raforku með jarðvarma og 1.900 megavött með vatnsafli. Hörður segir mestan vöxtinn verða í jarðvarmanum. Hann segir hins vegar óljóst hve mikla raforku Íslendingar geti vonast til að flytja til Evrópu, verði af sæstreng þangað. Arion banki stóð fyrir ráðstefnu í gær um orkumál í Evrópu og velti því upp hvort tækifæri væru fyrir íslensk fyrirtæki í þeim málaflokki. Charles Hendry, orkumálaráðherra Bretlands, lýsti þar miklum áhuga á samvinnu við Íslendinga um efnið, en hann og Oddný G. Harðardóttir iðnaðarráðherra undirrituðu viljayfirlýsingu um aukið samstarf á sviði orkumála á miðvikudag. Hendry segir að Bretar þurfi að fjárfesta fyrir 100 milljarða punda í raforkugeirum til að ná markmiðum Evrópusambandsins um að hlutur endurnýjanlegra orkugjafa nemi 20 prósentum af allri orkunýtingu árið 2020. Aðra 100 milljarða þurfi almennt í öðrum orkugeirum. Fjárfestingarþörfin væri því gríðarleg og ljóst að fjöldi starfa mundi skapast í þessum geira á næstunni. Guðmundur Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri Landsnets, sagði að ef sæstrengur til Evrópu yrði að veruleika yrði að efla dreifikerfi fyrirtækisins til muna. Það ætti sérstaklega við um suðausturhluta landsins, þar sem líklegast er að slíkur strengur tengist landinu, verði af honum. Aðspurður sagði hann óvíst hvaða áhrif það hefði á raforkuverð til neytenda næðist tenging inn á markað þar sem raforkuverð er hærra. Markaðssjónarmið réðu, en til væru leiðir til að halda verði til neytenda lágu. kolbeinn@frettabladis.is
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira