Blíðan varir út vikuna 29. maí 2012 06:00 Þessi drengur þurfti ekki að láta segja sér það tvisvar að stökkva í Pollinn við Akureyri til að kæla sig í gærdag, enda fór hitinn í bænum upp í 20 stig. Mynd/Hildigunnur Magnúsdóttir „
Menn fara sennilega að kvarta undan úrkomuleysi í lok vikunnar,“ segir Björn Sævar Einarsson veðurfræðingur. Veðurstofa Íslands spáir blíðskaparveðri á landinu öllu út vikuna, en útlit er fyrir að hitinn haldist í um 20 gráðum í innsveitum norðaustanlands fram til laugardags. „Það verður yfirleitt heitast inn til landsins og má alveg búast við við þessum hita út vikuna,“ segir Björn Sævar.. „Þetta verður mjög aðgerðarlítið veður.“ Hitinn orsakast af mjög hlýju lofti sem berst úr suðri og var svokölluð frostmarkshæð yfir landinu um 12 þúsund fet í gærdag. Björn Sævar segir það ótrúlega hátt. „Það nær sjaldnast svona hátt en þýðir að við erum einfaldlega með afskaplega hlýtt loft,“ segir hann. Hitinn fór yfir 20 stig á Akureyri í gær og svo virtist sem margir þeir sem sóttu bæinn heim um hvítasunnuhelgina hafi ákveðið að nota síðustu stundir heimsóknarinnar í Sundlaug Akureyrar. Mikil örtröð myndaðist fyrir utan sundlaugina í gærmorgun og segir Friðbjörg Hallgrímsdóttir, vaktstjóri í sundlauginni, að traffíkin hafi byrjað afar snemma. Biðraðir höfðu myndast áður en staðurinn opnaði klukkan tíu um morguninn. „Á stærstu dögunum okkar eru um 2.200 manns að fara hér í gegn og ég gæti trúað því að fjöldinn fari yfir það núna.“ sunna@frettabladid.is
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira