Mér er alveg sama hvað bæjarbúum finnst um mig 23. maí 2012 07:00 Gary Martin lætur illar tungur ekki trufla sig heldur einbeitir sér að boltanum. fréttablaðið/guðmundur bjarki
Skagamaðurinn Gary Martin er leikmaður 4. umferðar Pepsi-deildar karla hjá Fréttablaðinu. Hann er ekki uppáhald allra bæjarbúa en honum stendur á sama hvað sé sagt um sig. Hann er samt ánægður hjá ÍA og með félagið. Martin hefur verið í miklu stuði fyrir sitt lið í upphafi sumars og á stóran þátt í því að ÍA situr á toppi Pepsi-deildarinnar með fullt hús. Hann skoraði mark og lagði upp sigurmarkið gegn Keflavík í síðustu umferð. „Við áttum kannski ekki von á því að vera á toppnum eftir fjórar umferðir en við vissum að það væri mögulegt," sagði Martin. Hann hrósar þjálfaranum Þórði Þórðarsyni og segir að styrktarþjálfarinn Dean Martin eigi einnig stóran þátt í velgengninni. „Hann er ótrúlegur styrktarþjálfari. Við erum að skora mikið í lok leikja og það segir okkur að liðið er í góðu formi. Ég held að það sé ekkert lið í eins góðu formi og við." Martin er nokkuð ánægður með eigin frammistöðu þó svo hann vilji helst alltaf spila upp á toppi en hann má oft sætta sig við að spila á kantinum. „Hvert sem ég fer næst þá vil ég vera þekktur sem framherji. Þar sé ég mína framtíð. Auðvitað geri ég samt það sem þjálfarinn vill að ég geri til þess að styðja liðið." Hinir duglegu munu uppskeraEitt af helstu einkennum Martin er gríðarleg vinnusemi en hann stoppar aldrei. „Þegar ég var ungur drengur í Middlesbrough þá var ég með þjálfara sem tjáði mér að það væri ekki hægt að eiga slæma dag ef maður legði hart að sér. Hann sagði að þeir sem leggja mikið á sig muni ávallt uppskera. Ég hef haft þessi orð þjálfarans í hávegum æ síðan. Þegar aðrir verða þreyttir er ég enn á fullu og þá koma tækifærin." Martin og félagi hans frá Englandi, Mark Doninger, hafa alla tíð verið duglegir að æfa. Svo mikið reyndar að Þórður þjálfari bannaði þeim um tíma að lyfta tvisvar á dag ásamt því að fara á æfingu. „Hann sagðist ætla að sekta okkur ef við færum að lyfta svona mikið," sagði Martin og hló við. „Það er mikill frítími á Akranesi og lítið annað við hann að gera en að æfa. Við erum ekki með fjölskyldur okkar hér og svo á ég líka kærustu sem er út í Englandi. Þetta er ekki alltaf auðvelt." Sendi ósáttum Skagamönnum skilaboðTwitter-æðið í íslenska fótboltaheiminum hefur ekki farið fram hjá Martin sem tístar grimmt alla daga. Hann hefur meðal annars verið duglegur að greina frá því hvað honum leiðist mikið á Akranesi og að hann vilji ekki vera þar. „Ég þarf að búa í Reykjavík ef ég verð áfram á Íslandi. Ég þarf að geta gert eitthvað annað en borða, æfa og sofa. Ég hef ekki gert annað í tvö ár núna. Það er ekkert annað að gera á Akranesi. Við Mark erum reyndar búnir að fá bíl núna og það hjálpar mikið. Núna komumst við eitthvað," sagði Martin en ummæli hans um bæinn hafa ekki farið vel í alla bæjarbúa. „Sumir stuðningsmenn voru eitthvað ósáttir við mig eftir leikinn gegn Fylki. Það var talað um mig í bænum og það fór aðeins í taugarnar á mér. Hvernig getur fólk talað svona um mig eftir allt sem ég hef lagt á mig fyrir félagið og skilað til þess?" sagði Martin en hann sendi ósáttu stuðningsmönnunum skilaboð er hann skoraði gegn Keflavík. Lyfti upp treyjunni og undir var hann í bol sem stóð á „BOV". „Það þýðir að mér sé alveg sama hvað þeim finnst um mig. Ég hugsa um sjálfan mig og passa að ég sé í fyrsta sæti. Ég er að hugsa um mig og liðið. Þar fæ ég frábæran stuðning frá Þórði Guðjónssyni framkvæmdastjóra. Félagið er alltaf að hjálpa mér og ég er mjög ánægður með ÍA." Martin segir að þó svo honum líki ekki að búa á Akranesi útiloki hann ekki að spila áfram með ÍA þó svo hann búi í Reykjavík. Hann bendir líka á að fólk á Akranesi þurfi að skilja að hann komi frá stærri stað þar sem meira var um að vera. „Ég er ánægður með allt hjá félaginu og sé ekki að ég geti spilað fyrir annað lið á Íslandi. Það er líklegt að ég þurfi nýja áskorun eftir sumarið. ÍA stendur með mér og vill að ég nái lengra. Það kann ég að meta."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira