Neitar að upplýsa um virði FIH-seljendaláns 11. apríl 2012 14:00 Már Guðmundsson seðlabankastjóri er stjórnarformaður Eignasafns Seðlabanka Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Seðlabanki Íslands vill ekki gefa upp hvert bókfært virði seljendaláns sem veitt var við sölu FIH-bankans haustið 2010 er. Lánið er ein helsta eign bankans og er geymt í dótturfélagi hans, Eignasafni Seðlabanka Íslands (ESÍ). Í svari Seðlabankans við fyrirspurn Markaðarins segir að „ekki eru veittar upplýsingar um virði einstakra bréfa". Seðlabankinn eignaðist veð í FIH þegar hann lánaði Kaupþingi 500 milljónir evra skömmu áður en bankinn féll í október 2008. Höfuðstóll seljendalánsins, sem upphaflega var sagt um 70 milljarða króna virði, átti að leiðréttast með tilliti til afskrifta FIH fram til ársloka 2014. Frá miðju ári 2010 hefur FIH afskrifað um 50 milljarða króna. Óbein eign FIH í danska skartgripaframleiðandanum Pandora gat á móti aukið virði lánsins. Hlutabréf í því félagi hafa hins vegar hríðfallið í verði og eru langt frá því að skila Seðlabankanum auknum heimtum. Þann 20. mars síðastliðinn svaraði Seðlabankinn skriflega spurningum Helga Hjörvar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar, vegna lánsins. Þar segir að „miðað við núverandi stöðu eru líkur á að hluti þess muni tapast". Í lok árs 2011 voru eignir ESÍ metnar á 340,3 milljarða króna, sem var 21% af heildarefnahag Seðlabankans. Eignirnar lækkuðu um 56 milljarða króna í fyrra. Í ársskýrslu Seðlabankans segir að þá rýrnun megi „rekja til innheimtu eigna og niðurgreiðslu skulda gagnvart Seðlabankanum". Virðisrýrnun krafna var 23,9 milljarðar króna í fyrra en Seðlabankinn vill ekki gefa upp hvaða kröfur það eru sem tapað hafa virði sínu.- þsj
Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Sjá meira