Aprílgabb borgarfulltrúa Ólafur Baldursson skrifar 5. apríl 2012 06:00 Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi ritaði pistil um nýjan Landspítala á bloggsíðu sína 3. apríl sl. Í pistlinum er að finna ýmsar rangfærslur og staðreyndavillur og virðist hann gera sér leik að því að taka tölur úr samhengi. Gísli Marteinn heldur því blákalt fram að til standi að byggja 290 þúsund fermetra spítala og að sameinaður spítali verði þrisvar sinnum stærri en núverandi byggingar við Hringbraut og í Fossvogi. Þetta er ótrúlegur málflutningur og hefði sómt sér betur til birtingar 1. apríl. Hið rétta er að áformað er að byggja 76 þús. fermetra í fyrsta áfanga til ársins 2018. Heildarstærð bygginga á Hringbraut að meðtöldum eldri byggingum sem áfram verða nýttar verður þá 132 þús. fermetrar eftir þennan áfanga og ráðgert er að öll starfsemi flytjist úr Fossvogi á þessum tíma. Í síðari áföngum er hugsanlegt að byggja 56 þús. fermetra og gæti mesta byggingarmagn spítalans orðið 188 þús. fermetrar, ef þörf krefur, en aldrei meira en það. Þörf er reyndar lykilhugtak þegar rætt er um endurnýjun Landspítala. Ný tækni, eldri þjóð og nútímasjúkrahúsþjónusta gera nýbyggingar spítalans bráðnauðsynlegar. Með byggingu fyrsta áfanga spítalans á að sameina á einum stað alla bráðastarfsemi spítalans og verður hver fermetri nýttur. Gísli Marteinn segir í bloggpistli sínum: „Ég skal fúslega játa að það hefur tekið mig tíma að átta mig á ofangreindum staðreyndum“. Undarleg töf það, því að staðreyndir málsins liggja skýrt og greinilega fyrir í opinberum gögnum, m.a. hjá skipulagsráði sem Gísli Marteinn situr sjálfur í, og á vef Nýs Landspítala (http://www.nyrlandspitali.is). Hið sorglega er að eftir hina löngu yfirlegu Gísla Marteins er niðurstaða hans röng og þar af leiðandi villandi. Það er áhyggjuefni þegar stjórnmálamenn keppast við að gera stærstu mál þjóðarinnar að pólitískum bitbeinum og gera sér leik að því að fara rangt með staðreyndir. Með pistli sínum sýnir Gísli Marteinn að hann tekur fullan þátt í þessari vafasömu íþrótt, væntanlega í þeirri von að komast á verðlaunapall. Slíkur leikur má ekki tefja brýnt framfaramál þjóðarinnar sem endurnýjun Landspítala er. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi ritaði pistil um nýjan Landspítala á bloggsíðu sína 3. apríl sl. Í pistlinum er að finna ýmsar rangfærslur og staðreyndavillur og virðist hann gera sér leik að því að taka tölur úr samhengi. Gísli Marteinn heldur því blákalt fram að til standi að byggja 290 þúsund fermetra spítala og að sameinaður spítali verði þrisvar sinnum stærri en núverandi byggingar við Hringbraut og í Fossvogi. Þetta er ótrúlegur málflutningur og hefði sómt sér betur til birtingar 1. apríl. Hið rétta er að áformað er að byggja 76 þús. fermetra í fyrsta áfanga til ársins 2018. Heildarstærð bygginga á Hringbraut að meðtöldum eldri byggingum sem áfram verða nýttar verður þá 132 þús. fermetrar eftir þennan áfanga og ráðgert er að öll starfsemi flytjist úr Fossvogi á þessum tíma. Í síðari áföngum er hugsanlegt að byggja 56 þús. fermetra og gæti mesta byggingarmagn spítalans orðið 188 þús. fermetrar, ef þörf krefur, en aldrei meira en það. Þörf er reyndar lykilhugtak þegar rætt er um endurnýjun Landspítala. Ný tækni, eldri þjóð og nútímasjúkrahúsþjónusta gera nýbyggingar spítalans bráðnauðsynlegar. Með byggingu fyrsta áfanga spítalans á að sameina á einum stað alla bráðastarfsemi spítalans og verður hver fermetri nýttur. Gísli Marteinn segir í bloggpistli sínum: „Ég skal fúslega játa að það hefur tekið mig tíma að átta mig á ofangreindum staðreyndum“. Undarleg töf það, því að staðreyndir málsins liggja skýrt og greinilega fyrir í opinberum gögnum, m.a. hjá skipulagsráði sem Gísli Marteinn situr sjálfur í, og á vef Nýs Landspítala (http://www.nyrlandspitali.is). Hið sorglega er að eftir hina löngu yfirlegu Gísla Marteins er niðurstaða hans röng og þar af leiðandi villandi. Það er áhyggjuefni þegar stjórnmálamenn keppast við að gera stærstu mál þjóðarinnar að pólitískum bitbeinum og gera sér leik að því að fara rangt með staðreyndir. Með pistli sínum sýnir Gísli Marteinn að hann tekur fullan þátt í þessari vafasömu íþrótt, væntanlega í þeirri von að komast á verðlaunapall. Slíkur leikur má ekki tefja brýnt framfaramál þjóðarinnar sem endurnýjun Landspítala er.
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar