Viðskipti innlent

Þriðja hvert stórfyrirtæki í eigu banka

Ný skýrsla Með útgáfu skýrslunnar er Samkeppniseftirlitið að fylgja eftir stærri skýrslu, "Samkeppnin eftir hrun“, sem gefin var út sumarið 2011. Páll Gunnar Pálsson er forstjóri eftirlitsins.
Ný skýrsla Með útgáfu skýrslunnar er Samkeppniseftirlitið að fylgja eftir stærri skýrslu, "Samkeppnin eftir hrun“, sem gefin var út sumarið 2011. Páll Gunnar Pálsson er forstjóri eftirlitsins.
Bankar eru í ráðandi stöðu í 27% af 120 stærstu fyrirtækjum landsins í byrjun árs 2012. Þeir voru í slíkri stöðu í 46% þeirra í byrjun árs 2011 en á síðasta ári voru 20 stór fyrirtæki seld eða endurskipulögð með þeim hætti að bankarnir hafa ekki lengur þau ítök í rekstri fyrirtækjanna sem þeir höfðu áður. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Samkeppniseftirlitsins sem ber heitið „Endurreisn fyrirtækja 2012 aflaklær eða uppvakningar?" Skýrslan verður birt opinberlega á mánudag.

Í henni kemur fram að stór íslensk fyrirtæki eru mjög skuldsett í alþjóðlegum samanburði. Þar segir að „eftirtektarvert er að skuldir fyrirtækja sem lokið hafa endurskipulagningu eru eftir sem áður almennt mjög miklar. Um þriðjungur stjórnenda stærri íslenskra fyrirtækja, sem hafa verið seld eða gengið í gegnum endurskipulagningu, telja að fyrirtækið geti ekki staðið undir núverandi skuldabyrði eða að óvíst sé að það geti staðið undir henni."

Að mati Samkeppniseftirlitsins stafa margvíslegar hættur af mikilli skuldsetningu fyrirtækja. Þau geti hvorki veitt keppinautum aðhald né starfað með skilvirkum hætti á markaði. Í skýrslunni segir að „hætt er við því að slíkt fyrirtæki ákveði verð á vöru eða þjónustu í samræmi við slæma skuldastöðu sína sé þess nokkur kostur. Hættan á þessu er þeim mun meiri eftir því sem samkeppni á þeim markaði sem fyrirtækið starfar á er minni og markaðshlutdeild þess meiri".

Samkeppniseftirlitið ætlar á næstunni fyrst og fremst að beina sjónum sínum að tvennu í tengslum við eftirlit með endurskipulagningu fyrirtækja. Annars vegar eftirliti með arðsemismarkmiðum fyrirtækja sem enn eru undir yfirráðum banka og hins vegar að tryggja að raunveruleg yfirráð banka yfir fyrirtækjum séu uppi á borðum. Eftirlitið hefur að undanförnu haft til skoðunar nokkur mál þar sem kannað er hvort myndast hafi yfirráð banka yfir fyrirtækjum samkvæmt samkeppnislögum. Í skýrslunni segir að þetta sé sérstaklega mikilvæg spurning vegna „mikillar skuldsetningar fyrirtækja og möguleika banka til að hafa áhrif á rekstur skuldsettra fyrirtækja í gegnum skilmála í lánasamningum og gjaldfellingarákvæði."

thordur@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×