Gætu sótt 95 milljarða í sparnaðinn 28. mars 2012 06:00 Sé miðað við verðbólgumarkmið Seðlabankans með vikmörkum væru verðtryggð lán Íbúðalánasjóðs tæpum 17% lægri en raunstaða höfuðstóls þeirra er nú. fréttablaðið/stefán Mynd/Vilhelm
Ríkið á inni á bilinu 76,6 til 94,8 milljarða króna í skatti á séreignarsparnað. Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, vill skoða hvort ríkið eigi að leysa þann skatt til sín strax til að koma til móts við þá sem tóku verðtryggð lán hjá Íbúðalánasjóði. Í dag er skattlagt við útgreiðslur úr sjóðnum. Endurskoðunarfyrirtækið KPMG kannaði málið fyrir Helga. Upphæðin fer eftir því hvort miðað er við lægsta skattþrep, 37,35%, eða það hæsta, 46,24%. Sveitarfélögin eiga sinn hluta af tekjunum og sé miðað við hámarksútsvar nemur hann 29,7 milljörðum króna. KPMG gekk út frá því að hlutur sveitarfélaganna rynni ekki til þeirra án skilyrða eða takmarkana. Í því skyni koma þrjár leiðir til greina. Hægt væri að greiða útsvarið til sveitarfélaganna í formi skuldabréfs frá ríkissjóði sem ekki yrði byrjað að greiða af fyrr en eftir 2014. Þá er hægt að greiða útsvarið samhliða því sem lífeyrisþegar taka sparnað sinn út, en það þykir flókið í framkvæmd. Alþingi gæti einnig sett lög um að heildarfjárhæðin rynni í ríkissjóð og tæki þannig hluta sveitarfélaganna. Kanna þarf hvort það stenst lög og hvort bæta þurfi sveitarfélögunum það upp með einhverjum hætti. KPMG kannaði stöðu lána Íbúðalánasjóðs sem veitt voru á tímabilinu 2002 til 2008. Þau hafa verið uppreiknuð miðað við breytingu á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Heildarfjöldi þeirra er rúmlega 39.200 og staða þeirra var 402,5 milljarðar í árslok 2011. Til samanburðar voru lánin reiknuð miðað við verðbólgumarkmið Seðlabankans og vikmörk þess, eða 4%. Staða lánanna miðað við þær forsendur hefði verið 335,3 milljarðar um áramótin, eða 67,2 milljörðum krónum lægri. Það þýðir 16,75 lækkun frá raunstöðu höfuðstóls. Helgi segir skýrsluna unna fyrir sig sjálfan og vera innlegg í umræðu um almennar afskriftir. „Ég hef lagt til að þessi leið verði farin, en er líka opinn fyrir öðrum útfærslum, bæði á tekjuöflun verkefnisins og líka fyrir því hvernig eigi að koma til móts við fólk með verðtryggð lán. Ég er tilbúinn að styðja allar góðar tillögur í þeim efnum." kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Góð ráð dýr þegar erlenda vinnuaflið kom ekki: „Eitt gler er tvö hundruð kíló“ Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Sjá meira