Vilja sjöfalda fiskeldi sitt í Ísafjarðardjúpi 9. febrúar 2012 05:30 Þorskeldi hefur verið stundað í nokkrum innfjörðum Ísafjarðardjúps í tíu ár. Nú vilja menn víkka út með eldi á regnbogasilungi og laxi. Mynd/Valdimar Ingi Gunnarsson
Hraðfrystihúsið Gunnvör hyggst koma á fót samtals sjö þúsund tonna fiskeldi á nokkrum stöðum í Ísafjarðardjúpi. Hingað til hefur Gunnvör mest náð að framleiða eitt þúsund tonn af þorski á ári. Bæta á við laxi og regnbogasilungi. „Þetta getur orðið gífurleg innspýting í kerfið,“ segir Einar Valur Kristinsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar sem hefur kynnt áform um sjö þúsund tonna sjókvíaeldi á nokkrum stöðum í Ísafjarðardjúpi. Áætlanir Gunnvarar ná til þriggja sveitarfélaga: Ísafjarðarbæjar, Súðavíkurhrepps og Strandabyggðar. Almennt virðist viðhorfið jákvætt til málsins þótt því hafi engu að síður verið vísað í umhverfismat. Gunnvör hefur hingað til verið á þremur stöðum í Djúpinu, mest í Súðavíkurhreppi: Í Álftafirði, Seyðisfirði og Skötufirði. Einar segir að þótt fyrirtækið hafi nú þegar leyfi til eldis á tvö þúsund tonnum af þorski hafi eins árs framleiðsla mest náð eitt þúsund tonnum. Með því að fá heimild til að framleiða allt að sjö þúsund tonnum á útvíkkuðu starfssvæði má segja að stefnt sé að því að sjöfalda framleiðsluna. Að sögn Einars hefur þróunin í tilraunaeldi á þorski sem staðið hafi í tíu ár gengið hægar en menn væntu. Því vilji menn styrkja eldisþátt fyrirtækisins með eldi á laxi og regnbogasilungi sem sé einfaldari framleiðsla. „Það er allt þekkt í því varðandi sjúkdóma og varnir en það er svolítið í land með þorskinn,“ segir hann. Að sögn Einars hafa hátt í þrjátíu manns þegar lífsviðurværi sitt af þorskeldinu. Fyrirtækið hafi allar forsendur til að færa út kvíarnar. „Við erum með eldisbúnaðinn, fólkið, skipin og sláturhús þannig að við erum með alla grunngerðina,“ segir hann. Jón Gísli Jónsson, oddviti í Strandabyggð, segir að sér lítist mjög vel á fyrirætlanir Gunnvarar. Í Strandabyggð er ætlunin að vera með kvíar við Nauteyri, innst í Ísafjarðardjúpi. Í bókun Strandamanna er vísað til umfangs málsins og hugsanlegra áhrifa á laxveiðiár á svæðinu. Því þyki rétt að gert sé umhverfismat. „Veiðimenn óttast að fiskur sleppi og fari upp í árnar,“ segir Jón. Einar Valur segir hins vegar að í áætlunum Gunnvarar sé að öllu leyti farið eftir lögum og reglum. „Allar fjarlægðir og slíkt er innan allra marka,“ segir framkvæmdastjóri Gunnvarar. gar@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira