Innlent

Spáðu mikið í framtíðina

Silfurgata 5. Nú stendur til að opna gistihús í Norska bakaríinu á Ísafirði og komu munirnir í ljós þegar veggir á efri hæð hússins voru brotnir niður.

Mynd/Halldór Sveinbjörnsson
Silfurgata 5. Nú stendur til að opna gistihús í Norska bakaríinu á Ísafirði og komu munirnir í ljós þegar veggir á efri hæð hússins voru brotnir niður. Mynd/Halldór Sveinbjörnsson
„Þetta kom mér ekki á óvart. Þeir bræðurnir voru mjög þenkjandi og spáðu mikið í framtíðina. Flöskuskeyti inni í vegg er alveg eftir þeim," segir Friðrik Bergsveinsson, sonur Bergsveins Guðmundssonar, smiðs frá Ísafirði. „Ég var rosalega hrifinn þegar ég frétti af þessu."

Faðir Friðriks, Bergsveinn Guðmundsson, og Kristján bróðir hans skildu eftir bréf í glerflösku milli þilja í húsi á Ísafirði árið 1927 þegar þeir voru að gera upp íbúð fyrir móður sína og bróður. Kristján lést árið 1952 og Bergsveinn árið 1988.

Friðrik segir bræðurna hafa verið mikla spekinga. Þeir hafi sennilega viljað skilja eitthvað eftir sig þegar þeir stóðu í framkvæmdum við húsið.

„Ég þekki þessar hugmyndir pabba vel," segir hann. „Hann var svo mikið fyrir að segja frá hvernig fjölskyldan komst af á þessum tímum."

Bréfið fannst vel varðveitt í glerflösku á dögunum þegar veggur á efri hæð hússins, sem stendur við Silfurgötu 5 og gengur undir heitinu Norska bakaríið, var rifinn niður vegna endurbóta. Það kom þá í ljós ásamt öðrum munum sem bræðurnir skildu eftir. Greint var frá fundinum á vef Bæjarins besta.

Meðal þess sem fannst milli þilja í húsinu var bréf, lykill, tindátar, gafall, tindátar, armbönd, máluð tréklemma og trétappi.
Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, sagnfræðingur og skjalavörður á Héraðsskjalasafninu á Ísafirði, segir fundi sem þessa gerast einstaka sinnum.

„Ég man eftir svipuðu máli á Flateyri og í öðru húsi á Ísafirði," segir hún. „Svona löguðu fylgja mikil menningarsöguleg verðmæti. Þetta er dálítið eins og að spjalla við einhvern úr fortíðinni."

Guðfinna segir bréfið hafa verið ritað við upphaf mjög erfiðra tíma. Atvinnu- og aflaleysi átti fyrst eftir að skella á landinu fyrir alvöru nokkrum árum síðar.





"kærar kveðjur, þjer óþektu smiðir“
Bréf bræðranna.Mynd/Halldór Sveinbjörnsson
„Íbúð þessi er gerð af okkur bræðrum, Bergsveini Guðmundssyni trjesmið og Kristjáni Guðmundssyni verksmiðjustj. á tímabilinu febr. – apríl árið 1927. Eigendur þessa húss eru nú: Helgi Guðmundsson bakari bróðir okkar og Árni J. Árnason. Keyptu þeir húsið af h/f Hinar sameinuðu ísl. verslanir sumarið 1926. Þar áður átti eignina Á. Ásgeirsson verslun um langt skeið. Fjekk hún hana af norskum manni, Soli, er ljet byggja húsið og stofnaði bakaríið.

Efri hæðin af þessari álmu hússins er þó byggð síðar, nokkru fyrir aldamót af Jóakim Jóakimssyni trjesm. Hefur það rúm verið notað fyrir geymslu þar til nú. Þessi íbúð er ætluð móður okkar, Kristínu Friðriksdóttur, og okkur.

Það er allra ætlan, að aldrei áður hafi atvinnuleysi og fjárskortur þrengt svo kosti íbúa þessa bæjar sem nú. Við óskum og vonum að þegar þetta blað kemur næst fyrir mannaaugu verið ástandið betra og horfurnar glæsilegri. Við sendum yður kærar kveðjur, þjer óþektu smiðir sem að rífið þetta hús, og gagnið þannig lögmáli þróunarinnar: Að bylta og byggja betur á ný.

Vinsamlegast

Ísafirði 3. apríl 1927

Bergsv. Guðmundss. Kr. Guðmundsson."

Birt á vef Bæjarins besta þann 7. febrúar 2012

sunna@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×