Svíinn Du Rietz á leið til Löwen Henry Birgir Gunnarsson skrifar 8. febrúar 2012 06:00 Svínn Du Rietz mun styrkja lið Löwen mikið enda eitt mesta efnið í handboltaheiminum í dag.nordic photos/getty images
Þýska liðið Rhein Neckar-Löwen tilkynnti í gær um enn frekari breytingar sem verða á liðinu í sumar. Pólverjarnir Karol Bielecki og Krzysztof Lijewski hverfa á braut til félags Þóris Ólafssonar í Póllandi, Kielce, en sænska skyttan Kim Ekdahl Du Rietz kemur til Löwen frá franska félaginu Nantes. „Ég sé fram á að geta tekið enn meiri framförum sem leikmaður hjá Löwen og get ekki beðið eftir að spila með félaginu," sagði Du Rietz en hann er 22 ára gamall og eitt almesta efnið í handboltaheiminum í dag. Hann sló í gegn með sænska landsliðinu á HM í fyrra og einnig á EM í Serbíu í síðasta mánuði. Mikill styrkur fyrir Löwen sem Guðmundur Guðmundsson þjálfar samhliða þjálfun íslenska landsliðsins.. Du Rietz er þriðji leikmaðurinn sem Guðmundur nælir í en Alexander Petersson og danski markvörðurinn Niklas Landin koma einnig til Löwen í sumar. Bielecki hefur spilað með Löwen undanfarin ár en Lijewski nær aðeins einu tímabili með félaginu en hann hefur ekki þótt standa undir væntingum síðan hann kom frá Hamburg. Báðir leikmenn munu styrkja lið Kielce mikið og hefur pólska liðið verið duglegt að taka á móti leikmönnum frá Löwen. en markvörðurinn Slawomir Szmal kom til félagsins frá Löwen síðasta sumar. Svo var einnig greint frá því í gær að danski skartgripajöfurinn Jesper Nielsen væri við það að hætta sem stjórnarformaður Löwen en hann mun fara að einbeita sér alfarið að danska liðinu AG sem fjórir Íslendingar leika með.
Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Sjá meira