Tollfrjálst í fríhöfn en rukkað við hliðið 19. nóvember 2012 07:00 Nokkrar af þeim vörum sem seldar eru tollfrjálst í komuverslun Fríhafnarinnar eru, sökum verðs, tollskyldar og þarf að gefa upp við starfsmenn tollgæslunnar, rétt utan við verslunina. Fréttablaðið/Anton
Verð á mörgum vörum í komuverslun Fríhafnarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er yfir leyfilegu hámarksvirði einstaks hlutar, 32.500 krónum. Því þurfa kaupendur að gefa hlutina upp við tollafgreiðslu eftir að hafa keypt þá tollfrjálst skömmu áður, undir sama þaki. Kaupendur ráða því hvort þeir gefa hlutinn upp við tollverði eða taka áhættuna á að lenda í úrtaki tollsins í græna hliðinu. Það getur haft í för með sér stóraukinn kostað og fyrirhöfn. Kári Gunnlaugsson, yfirtollvörður í Leifsstöð, segir í samtali við Fréttablaðið að flestir virði lögin og gefi sig fram með hlutina í rauða hliðinu. Fréttablaðið hefur þó staðfesta vitneskju um að nokkuð sé um hið gagnstæða. ?Við getum ekki fylgst nákvæmlega með því að allir sem kaupa vöru yfir þessum mörkum komi í rauða hliðið, en okkar tilfinning er að fólk vilji hafa þessa hluti í lagi.? Aðspurður segir Kári að ekki hafi komið til tals að tollurinn og Fríhöfnin hafi með sér samstarf um að tryggja að hlutirnir séu gefnir upp í rauða hliðinu. Slíkt myndi aldrei ganga upp. Kári bætir þó við að fólki komi jafnan á óvart hversu lítið það þurfi að borga af vörunum, enda séu ekki innheimt gjöld af öllu virði hlutarins heldur aðeins því sem er umfram 32.500 krónurnar. ?Það er því ekki þess virði að taka áhættuna og þurfa svo að greiða mun meira ef maður er staðinn að verki.? Aðspurður segir Kári að fólk sem er staðið að því að reyna að koma tollskyldum varningi með ólöglegum hætti inn í landið fari ekki á sakaskrá, nema sektin sem um ræði sé yfir 50.000 krónum. Ólafur Ingi Ólafsson, verslunarstjóri Elko í Leifsstöð, segir aðspurður um slíka samhæfingu að álagning tilheyrandi gjalda á vöru sem er yfir 32.500 í versluninni sé ekki góður kostur. Ástæðurnar eru meðal annars þær að vöruúrvalið breytist jafnt og þétt og eins skipti máli hversu mikið af tollskyldum kaupvarningi komufarþegar hafi með sér til landsins. ?Það hefur komið til tals, og við getum reiknað út einstaka hluti. Hins vegar er fólk kannski með meiri varning með sér að utan sem það þarf líka að gera grein fyrir. Þannig verður sú upphæð sem það greiðir í rauða hliðinu allt önnur upphæð en við gefum því.? Ólafur segir þó að starfsfólk Elko hafi það sem starfsreglu að benda fólki á að koma við í rauða hliðinu ef það kaupir hluti sem eru yfir 32.500 króna markinu. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira