Risaratsjár Monge forða geimárekstrum 26. maí 2012 06:00 Jaques Riviére, skipherra Monge, á þilfarinu þar sem ratsjárdiskarnir öflugu eru. Tækjabúnaðurinn á Monge er gríðaröflugur og aðeins eitt annað sambærilegt skip er til í heiminum, en það er í eigu Kínverja. Fréttablaðið/Valli
Franska herskipið Monge liggur nú við bryggju í Reykjavík. Þar verður skipið fram á miðvikudag á meðan birgðir eru endurnýjaðar. Jaques Riviére, skipherra Monge, segir að skipverjar séu nú í fríi á Íslandi, en hafi verið við rannsóknir á hafinu í kringum landið að undanförnu. Monge er svokallað mælinga- og prófunarskip en tæknilegur útbúnaður skipsins er einstakur. Á því eru til dæmis þrír gríðarstórir ratsjárdiskar, sá stærsti er 60 tonn að þyngd, firnaöflugur sjónauki, sem hægt er að nota til að skoða stjörnur, jafnvel að degi til, og geisli sem notaður er til að greina lofthita, loftraka og vind í tuga kílómetra hæð. „Yfirleitt er okkar helsta verkefni að fylgjast með eldflaugatilraunum, en við erum hér á hafinu umhverfis Ísland til að fylgjast með mögulegum aðskotahlutum á braut um jörðu,“ sagði Riviére skipherra spurður um verkefni Monge. Hann segir að búnaður Monge sé notaður, í samvinnu við geimvísindastofnun Frakklands, til að fylgjast með slíkum hlutum til að forða því að þeir lendi á gervihnöttum og þvílíku. „Við fáum beiðnir um að fylgjast með ákveðnum hlut úti í geimnum og ef okkar mat er að hætta sé á að hann lendi til dæmis á gervihnetti með tilheyrandi skemmdum, er gervihnötturinn færður úr leið hlutarins. Þetta gerist svo til á hverjum degi hjá okkur.“ Sjaldgæfara er svo að stærri hlutir falli til jarðar úr geimnum, en þó hafa tvö slík tilvik komið upp síðustu mánuði. Geimvísindastofnanir heimsins nota meðal annars mælingar frá Monge til að reikna út feril og mögulegan lendingastað þeirra. Mælitækin eru gríðarlega nákvæm og geta meðal annars greint hlut á stærð við 100 krónu pening í 800 kílómetra fjarlægð frá Jörðu, og stærri hluti í allt að 5.000 kílómetra fjarlægð. Fátt má út af bera við slíka nákvæmnisvinnu enda er Monge sérútbúið að öllu leyti. Meira að segja litur skipsins er hugsaður í því tilliti, en hvítt dregur síður í sig sólarljós en aðrir litir og því þenst skrokkur skipsins síður út sólarmegin, en það dregur úr skekkju í mælingum. Eftir nokkurra daga afslöppun hér á landi halda skipverjar heim á leið með viðkomu í Færeyjum. Heimahöfn Monge er í borginni Brest, en skipið er jafnan á ferð um Norður-Atlantshafið við mælingar þriðjung ársins. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent „Ríkið á stóra sök á þessu“ Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Fleiri fréttir Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Sjá meira