Hefur tröllatrú á Gretu og Jónsa 26. maí 2012 18:14 „
Fyrst og fremst þá vona ég að þeim líði vel, að þau slappi af og segi nokkra brandara," segir Helga Möller, söngkona. Helga er fullviss um að þau Greta Salóme og Jónsi eigi eftir að standa sig vel og stígi stolt af sviði í Kristalshöllinni í Bakú. „Þau eru náttúrulega þaulreynt fólk," segir Helga. „Greta hefur komið fram síðan hún var fjögurra ára gömul, með fiðluna sína. Hún er afskaplega indæl og öguð stelpa og það skín í gegn." Þá segir Helga að mikil tilfinningaflækja fylgi slíkum flutningi og að birtingarmyndir spennunar séu af ýmsum toga. Helga tók þátt í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 1986 en framlag Íslands það árið var smellurinn Gleðibankinn. „Sjálf geispaði ég mikið rétt áður en við fórum á svið, mér var síðan tjáð að þetta væri spennan," segir Helga. „Maður finnur blóðið flæða, svo mikið er víst." Helga segir að framlag Íslands þetta árið sé afar frambærilegt og að það séu þjóðlegir eiginleikar lagsins, sem samið er af Gretu Salóme, sem skíni hvað skærast. „Það er þetta íslenska stef og yrkisefni lagsins sem heillaði mig," segir Helga. „Ég hef lengi haft trú á því að Íslandingar ættu ekki að fylgja öðrum þjóðum, við viljum að þessi lög ómi í þjóðarsálinni." Hægt er að sjá Gretu og Salóme flytja lagið Never Forget í myndbandinu hér fyrir ofan.
Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Starfsfólk bráðamóttöku óttist um heilsu sína og öryggi Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Vill að virðisaukaskattur á barnavörur verði látinn fjúka Starfsfólk á bráðamóttöku segist óttast um öryggi sitt Afplánaði of lengi en fær ekki krónu Hæstiréttur fjallar um hryðjuverkamálið svokallaða í dag Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Spila styrktarleik til minningar um Patrek: „Hans er sárt saknað“ Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok Sjá meira