Innlent

Hefur tröllatrú á Gretu og Jónsa

„Fyrst og fremst þá vona ég að þeim líði vel, að þau slappi af og segi nokkra brandara," segir Helga Möller, söngkona. Helga er fullviss um að þau Greta Salóme og Jónsi eigi eftir að standa sig vel og stígi stolt af sviði í Kristalshöllinni í Bakú.

„Þau eru náttúrulega þaulreynt fólk," segir Helga. „Greta hefur komið fram síðan hún var fjögurra ára gömul, með fiðluna sína. Hún er afskaplega indæl og öguð stelpa og það skín í gegn."

Þá segir Helga að mikil tilfinningaflækja fylgi slíkum flutningi og að birtingarmyndir spennunar séu af ýmsum toga. Helga tók þátt í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 1986 en framlag Íslands það árið var smellurinn Gleðibankinn.

„Sjálf geispaði ég mikið rétt áður en við fórum á svið, mér var síðan tjáð að þetta væri spennan," segir Helga. „Maður finnur blóðið flæða, svo mikið er víst."

Helga segir að framlag Íslands þetta árið sé afar frambærilegt og að það séu þjóðlegir eiginleikar lagsins, sem samið er af Gretu Salóme, sem skíni hvað skærast.

„Það er þetta íslenska stef og yrkisefni lagsins sem heillaði mig," segir Helga. „Ég hef lengi haft trú á því að Íslandingar ættu ekki að fylgja öðrum þjóðum, við viljum að þessi lög ómi í þjóðarsálinni."

Hægt er að sjá Gretu og Salóme flytja lagið Never Forget í myndbandinu hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×