Slasaðist á leiðinni til læknis - ríkið ber skaðabótaábyrgð 2. október 2012 14:50 Landspítalinn við Hringbraut.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi konu á sjötugsaldri í vil í morgun en hún höfðaði skaðabótamál gegn Ríkissjóði Íslands eftir að hún rann til í bleytu á Landspítalanum við Hringbraut árið 2008. Konan var á leiðinni í læknismeðferð þegar hún rann til. Ekki greint á um meiðsl konunnar, sem hlaut samfallsbrot um miðbik brjósthryggjar og féllu tveir hryggjarliðir saman. Konan var lögð inn á spítalann til verkjastillingar og þar lá hún í sex daga. Málsforsendur konunnar voru þær að þeir sem sáu um þrif hafi ekki gert nægilega miklar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir tjónið. Þessu mótmælti ríkið og vildi meina að þarna væri um vangá að ræða. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur segir aftur á móti að almennt verði að leggja ríka skyldu á rekstraraðila fasteigna, sem fjöldi fólks leggur leið sína um, og gera ráðstafanir sem sanngjarnar mega teljast til þess að tryggja öryggi þeirra sem þar eiga leið um. Þegar litið er til þess að Landspítalinn er opinber heilbrigðisstofnun og að líkamlega veikburða einstaklingar leita þangað vegna þeirrar þjónustu sem hann veitir og að þeir geta ef til vill ekki sótt þá þjónustu annað, eins og í tilfelli konunnar, verður að telja þessa skyldu enn ríkari að mati dómara. Þá kemur einnig fram að þegar konan hrasaði voru engar merkingar til viðvörunar um bleytu á gólfi og gólfið hafði ekki verið þurrkað eftir að skúringarvél hafði farið þar um. Viðeigandi ráðstafanir, eins og að setja upp merkingar eða þurrka bleytuna, geta hvorki talist tímafrekar né kostnaðarsamar að mati dómsins. Þannig kemst hann að þeirri niðurstöðu að það verði að meta starfsfólki ríkisins það til gáleysis að hafa ekki gengið svo frá eftir þrif á gangi spítalans að komið yrði í veg fyrir að sjúklingar sem leituðu þangað til meðferðar yrðu fyrir tjóni vegna bleytu á gólfum eftir þrifin. Skaðabótaskylda ríkisins var því viðurkennd.
Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Lindsey Graham er látinn Erlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Fleiri fréttir „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Sjá meira