Heildarupphæð barnabóta hækkar um 30% GRV skrifar 1. október 2012 12:25 Oddný Harðardóttir yfirgefur ríkisráðsfund í dag.
Síðasta embættisverk Oddnýjar Harðardóttur á stóli fjármálaráðherra var að kynna breytingar á barnabótakerfinu en á Ríkisráðsfundi nú rétt fyrir hádegið tók Katrín Júlíusdóttir við ráðuneytinu af Oddnýju. Heildarupphæð bótanna hækkar um þrjátíu prósent og tekjuskerðingarmörk hækka einnig. Oddný kynnti breytingarnar í morgun en með þeim er að hennar sögn verið að mæta ákalli um hækkun bótanna, en fjárhæð barnabóta eða tekjuskerðingarmörk hafa ekki tekið neinum breytingum frá árinu 2009. Á sama tíma hefur tekjufall og skuldaaukning landsmanna ekki síst bitnað á barnafjölskyldum. „Og því erum við að mæta með því að hækka upphæðina sem við verjum til barnabóta um þrjátíu prósent. Við hækkum bætur en við teygjum líka upp á tekjuásnum þannig að það eru fleiri sem fá óskertar bætur við þessa breytingu." Oddný segir að kostnaðurinn við breytingarnar sé 10,8 milljarðar á næsta ári en breytingarnar eiga að taka gildi í byrjun næsta árs. Viðbót vegna barna yngri en sjö ára hækkar um tæpar fjörutíu þúsund krónur og verður hundrað þúsund. Þá hækka tekjuskerðingarmörk einhleypra foreldra upp í tvær komma fjórar milljónir og hjá foreldrum í sambúð fara mörkin upp í fjórar komma átta milljónir. Tillagan hefur þegar verið samþykkt í ríkisstjórn og næsta skref er að leggja frumvarp þessa efnis fyrir Alþingi. Að sögn Oddnýjar er þó aðeins um ákveðinn millileik að ræða, framtíðarsýn núverandi Ríkisstjórnar sé að koma á fót nýju kerfi barnatrygginga. „Framtíðarsýnin er auðvitað sú að barnabætur verði ótekjutengdar, við erum ekki komin þangað, en þangað eigum við að stefna."
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Fleiri fréttir „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Sjá meira