Innlent

Fjórtán ökumenn drukknir og dópaðir um helgina

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði fjórtán ökumenn fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur um helgina.

Þrettán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Átta voru teknir á laugardag, fimm á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags.

Þetta voru þrettán karlar á aldrinum 19-59 ára og ein kona, 24 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×