Koma ekki í veg fyrir vefþrjóta á sölutorgi 24. ágúst 2012 02:30 Margir hafa lent í því að vefþrjótar hafi samband við þá og reyni að hafa af þeim fé.Fréttablaðið/samsett mynd
Fjölmörg dæmi eru um að á íslenskum vefsölutorgum finnist auglýsingar erlendra þrjóta sem hafa það eitt að leiðarljósi að hafa peninga af fólki. Mikil umræða hefur til að mynda skapast um það á Bland.is hvort ekki sé hægt að koma í veg fyrir að þrjótarnir fái að birta auglýsingar sínar á vefnum. Ekki hefur þó verið gripið inn í. Einn notandi á Bland.is segist hafa haft samband við vefstjórann um leið og hann áttaði sig á því að verið væri að spila með hann. Engin svör fengust og svo virðist sem ekkert hafi verið gert og þrjóturinn fær að „ganga laus“ án þess að við honum sé varað. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur forsvarsmaður Bland.is ekki svarað Fréttablaðinu. Margar ábendingar um svikaauglýsingar hafa borist í kjölfar umfjöllunar blaðsins um atvik þar sem reynt var að svindla á notanda Bland.is. Ómögulegt getur verið að rekja hvar þrjótarnir eru niður komnir. Það þarf ekki endilega að vera að þeir séu frá því landi sem þeir segjast vera. Þá er mjög ólíklegt að þeir noti sitt rétta nafn. Þrjótarnir eru hins vegar ekki alltaf á eftir vörum heldur þykjast líka vera að selja þær. Á Bland.is er auglýsing sem lesandi blaðsins segir að sé svikamylla. Þar auglýsir spænskumælandi notandi dýrar Apple-vörur eins og síma og spjaldtölvur. Þar biður hann um að borguð séu 60 prósent uppsetts verðs inn á reikning hjá erlendri greiðsluþjónustu og þegar sá hluti er kominn verði varan send til viðkomandi. Það gerist hins vegar ekki.birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Ráðst í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Sjá meira