Barn fann amfetamín í leikskólanum 24. maí 2012 07:30
Fimm ára drengur fann í febrúar poka með amfetamíni á leikskólanum Jörfa. Nóg til að valda barni alvarlegum skaða, segir prófessor í eiturefnafræði. Foreldrar fréttu fyrst af málinu í gær og eru ósáttir. Fimm ára drengur fann poka sem innihélt amfetamín í fatahengi leikskólans Jörfa í febrúar síðastliðnum. Drengurinn fann lítinn poka af hvítu dufti á gólfi fatahengisins í leikskólanum við Hæðargarð í Reykjavík en gerði sér eðli málsins samkvæmt enga grein fyrir því hvað í honum var. Hann sýndi föður sínum pokann þegar hann var sóttur og faðirinn fór þá með pokann til lögreglu, sem sendi innihaldið í efnagreiningu. Að sögn Árna Vigfússonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns, leiddi greiningin í ljós að pokinn innihélt 0,6 grömm af amfetamíni. Árni segir ómögulegt að segja til um hvort pokinn hafi borist inn á leikskólann með foreldri eða starfsmanni, eða hvort barn hafi fundið hann utandyra og tekið hann með sér inn. Hann segir að málið hafi ekki verið rannsakað frekar. Fréttablaðið hafði í gær samband við Svölu Ingvarsdóttur, starfandi leikskólastjóra á Jörfa, vegna málsins. Stuttu síðar barst skriflegt svar frá Sigrúnu Björnsdóttur, upplýsingafulltrúa mennta- og leikskólasviðs Reykjavíkurborgar. Þar kemur fram að á leikskólanum Jörfa, líkt og á öðrum leikskólum borgarinnar, sé á hverjum morgni farið yfir skólalóðina og gengið úr skugga um að allt leikrými sé í samræmi við reglur heilbrigðiseftirlits um öryggi barna. Í svarinu kemur enn fremur fram að pokanum hafi verið komið rakleiðis í hendur lögreglu og foreldrum vísað á lögreglu um frekari upplýsingar. Svala sendi öllum foreldrum tilkynningu um málið síðdegis í gær, eftir að blaðamaður hafði samband við hana. Heimildir herma að töluverðrar óánægju gæti meðal foreldranna með að hafa ekki fengið að vita af málinu um leið og það kom upp.- sh
Tengdar fréttir Sterkt efni getur hæglega verið banvænt Hálft til eitt gramm af amfetamíni getur verið stórhættulegt börnum, til dæmis ef þau myndu gleypa það, að sögn Jakobs Kristinssonar, prófessors í eiturefnafræðum. Fréttablaðið spurði Jakob hvaða áhrif það gæti haft á fimm ára barn að innbyrða hálft til eitt gramm af amfetamíni. 24. maí 2012 06:00 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira
Sterkt efni getur hæglega verið banvænt Hálft til eitt gramm af amfetamíni getur verið stórhættulegt börnum, til dæmis ef þau myndu gleypa það, að sögn Jakobs Kristinssonar, prófessors í eiturefnafræðum. Fréttablaðið spurði Jakob hvaða áhrif það gæti haft á fimm ára barn að innbyrða hálft til eitt gramm af amfetamíni. 24. maí 2012 06:00