Endurgreiðslur vegna kvikmynda hækka 21. ágúst 2012 04:00 Kvikmynd Christophers Nolan, Batman Begins, er ein fjölmargra smella frá Hollywood sem var tekin upp á Íslandi á síðustu árum.
Vinsældir Íslands meðal erlendra kvikmyndaframleiðenda aukast ár frá ári. Endurgreiðslur til framleiðenda hafa aldrei verið jafn háar og 2012. Alls hafa 26 erlendar kvikmyndir fengið endurgreiðslu frá ríkinu og 93 íslenskar myndir. Íslenska ríkið hefur endurgreitt meira til kvikmyndaframleiðanda það sem af er þessu ári heldur en allt árið í fyrra, eða 392 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum frá iðnaðarráðuneytinu voru 190 milljónir endurgreiddar til framleiðenda árið 2010, þar af rúmlega 20 milljónir til erlendra framleiðenda, en samkvæmt lögum frá 2001 fá kvikmyndagerðarmenn endurgreidd tuttugu prósent framleiðslukostnaðar frá ríkinu. Samkvæmt því var framleiðslukostnaður vegna kvikmyndagerðar tæpir tveir milljarðar fyrri hluta þessa árs. Innlendir framleiðendur fá yfirleitt hærri endurgreiðslur en þeir erlendu, enda eru þeir mun fleiri. Árið 2006 var þar undantekning, þegar erlendir framleiðendur fengu 122 milljónir endurgreiddar en 43 fóru til íslenskra. Aldrei hafa fleiri erlendar kvikmyndir verið teknar upp hér á landi eins og undanfarin tvö ár. Fjöldi innlendra verkefna hefur að sama skapi aukist. Jón Óskar Hallgrímsson, formaður nefndar iðnaðarráðuneytisins um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar, segir greiðslurnar vera hugsaðar sem vítamínsprautu fyrir kvikmyndaiðnaðinn. Hann getur ekki gefið upp upphæðir endurgreiðslna til einstakra verkefna, þar sem ársreikningar þeirra séu ekki opinber gögn. Einar Tómasson, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu, segir þróunina afar ánægjulega og benda til að vinsældir landsins séu alltaf að aukast. „Þetta er afskaplega gott mál. Þetta þýðir fjölgun verkefna, meiri erlendar tekjur og fleiri störf,“ segir hann. „En í þessum tölum eru heldur ekki auglýsingatekjurnar sem koma inn þegar stjörnurnar koma til landsins og „tvíta“ um hversu æðislegt það er að vera á Íslandi.“ Einar segir umfjöllun leikara og kvikmyndagerðarfólks um landið vera ómetanlega og erfitt sé að ná utan um hversu háum fjárhæðum hún skili í kassann. Varðandi ástæður þessara vaxandi vinsælda segir hann að tuttugu prósenta endurgreiðslan skipti vissulega miklu máli, en einnig andinn í landinu og vilji stjórnvalda til að koma til móts við framleiðendur. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira