Enski boltinn

Sinclair á leið til Man. City

Sinclair í leik gegn Man. City.
Sinclair í leik gegn Man. City.
Alan Curtis, þjálfari hjá Swansea, segir að það sé ekki spurning um hvort heldur hvenær Scott Sinclair verði seldur frá félaginu til Man. City.

Sinclair hefur ekki fengist til þess að framlengja samningi sínum við Swansea og þar sem Man. City hefur áhuga verður hann líklega seldur.

Þessi 23 ára gamli vængmaður skoraði 27 mörk leiktíðina 2010-11 og bætti við átta mörkum fyrir liðið í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×