Innlent

Staðfestu viðtöku IPA-styrkja

IPA-styrkir eru veittir ríkjum sem sótt hafa um ESB-aðild og eru hugsaðir sem fjárhagsaðstoð vegna umsóknarferlisins.
IPA-styrkir eru veittir ríkjum sem sótt hafa um ESB-aðild og eru hugsaðir sem fjárhagsaðstoð vegna umsóknarferlisins.
Rammasamningur ríkisstjórnarinnar við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) um svonefnda IPA-styrki var samþykktur á Alþingi í gær. IPA-styrkirnir eru veittir vegna aðildarumsóknar Íslands að ESB og eru hugsaðir sem fjárhagsaðstoð til Íslands vegna umsóknarferlisins.

Afgreiðsla málsins var hluti af samkomulagi stjórnar og stjórnarandstöðu um þinglok sem náðist í gær. Alls 30 þingmenn greiddu atkvæði með samningnum en 18 gegn honum. Fjórir þingmenn greiddu ekki atkvæði en aðrir voru fjarverandi.- mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×