Veiðigjöld afgreidd en stjórnunin bíður 19. júní 2012 06:00 Til stóð að samþykkja breytt frumvarp Steingríms J. Sigfússonar um veiðigjald í gær. Frumvarpi hans um fiskveiðistjórnun verður hins vegar frestað til haustsins. Hér ráðslagar ráðherrann við Helga Hjörvar fyrr í vetur. fréttablaðið/GVA
Samkomulag náðist um þinglok á milli formanna stjórnmálaflokkanna í gær. Það felur í sér samþykkt veiðigjalds, með þónokkrum breytingum, og að frumvarpi um fiskveiðistjórnun verði frestað, sem og þingsályktunartillögu um rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Þessi voru þrjú stóru mál ríkisstjórnarinnar á vorþinginu. Til stóð að samþykkja frumvarp um veiðigjöld í gærkvöldi. Gjaldið verður 12,7 til 13,7 milljarðar og ef það fer yfir 13,8 milljarða verður greitt til baka sem því nemur. Það verður á fjórum gjalddögum og miðast við kvótaárið, en það stendur frá 1. september til 31. júlí. Sérstakur samráðshópur mun fara yfir áhrif veiðigjaldanna, en þau verða aðeins samþykkt til eins árs. Þá verður framhaldið metið. Framsóknarflokkurinn fór fram á að samkomulag um þinglokin yrði formlega undirritað. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segist ánægður með samkomulagið, úr því sem komið var. „Við hefðum viljað sjá mat á því hvaða áhrif hækkun veiðigjalds hefur, en það gekk ekki eftir. Áfram verður þó unnið að málum í sumar og haust og ef forsendur breytast er mögulegt að taka á því.“ Frumvarp um stjórn fiskveiða frestast fram á næsta þing. Í samkomulaginu er einnig tekið á umdeildum atriðum í því, svo sem 40/60 regluna. Í henni felst að fari þorskkvóti yfir 202 þúsund tonn gangi 40% af honum til ríkisins en útgerðin fái 60%. Sigmundur segir að með samkomulaginu hafi náðst ákveðinn stöðugleiki. „Menn vita þá nokkurn veginn hvar þeir standa með kerfið. Í samkomulaginu felst einnig að þau atriði sem helst höfðu verið gagnrýnd af sérfræðingum, og öðrum sem skiluðu umsögnum, detta út.“ Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra sjávarútvegsmála, segir að um tímamótamál sé að ræða. Vissulega sé verið að fara vægar af stað en færa mætti rök fyrir að sjávarútvegurinn þoli, en meira tillit sé tekið til skuldugra fyrirtækja. Hann segir það vissulega vonbrigði að fiskveiðistjórnunin hafi ekki náðst í gegn. „Jú jú, en það er þó verið að reyna að setja það í farveg og við skulum sjá hverju það skilar. Að sjálfsögðu hefði maður viljað klára allan pakkann og það er vaxandi stuðningur við að það sé gert.“kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Innlent Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor Innlent Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Innlent Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Erlent „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Innlent Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Erlent Fleiri fréttir „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Stærsti skjálftinn 3,4 Fara í aðgerðir fáist ekki svör Handtekinn vegna stunguárásarinnar Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Sjá meira