Innlent

Náðu tveimur innbrotsþjófum eftir snarpa eftirför

Lögreglan náði á sjötta tímanum í morgun að króa bíl tveggja dópaðra innbrotsþjófa af og handtaka þá, eftir snarpa eftirför í Árbæjarhverfinu í Reykjavík.

Þetta hófst með því að tilkynnt var um innbrot í apótek í Ögurhvarfi klukkan hálf sex í morgun. Skömmu síðar ætluðu lögreglumenn að stöðva bíl í grennd við vettvanginn, en ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum og reyndi að komast undan.

Að sögn lögeglu, sem grunar mennina um innbrotið, voru bæði ökumaður og farþegi í annarlegu ástandi, en ekki kemur fram hverju var stolið í apótekinu eða hvort þýfi úr apótekinu fannst í fórum þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×