Sameinumst um að sýna lit 25. ágúst 2012 14:41 "
Appelsínuguli liturinn er einkennislitur UN Women og á að minna okkur á réttindabaráttuna fyrir betra lífi kvenna," segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. Samtökin halda appelsínugulan dag 25. hvers mánaðar í fimm mánuði sem á að vekja almenning til vitundar um ofbeldi gegn konum í heiminum og þörfina á að berjast gegn því. "Verslanir við Laugaveginn ætla að gera miðbæinn svolítið appelsínugulan í dag með því að vera með þann lit í gluggunum. Svo hvetjum við líka alla til að klæðast appelsínugulu og sýna þannig stuðning sinn í verki á táknrænan hátt," segir Inga Dóra og biður fólk að senda sér myndir. "Ofbeldi gegn konum er eitt helsta mannréttindabrot allra tíma," segir Inga Dóra. Hún tekur fram að sjónum sé sérstaklega beint að Afganistan nú, í tilefni þess að UN Women hefur nýverið fordæmt ofbeldi gegn stúlkum og konum þar. "Svo er íslenskur fókus á Afganistan líka. World Economic Forum hefur þrívegis valið Ísland þann stað sem best er að vera kona á en Afganistan þann versta, enda var komið árið 2009 þegar lög um afnám ofbeldis gegn konum voru samþykkt í Afganistan. Í þeim er kveðið á um að það sé refsivert að kaupa og selja konur, að selja konur í vændi, kveikja í þeim og brenna með sýru, að nauðga þeim og gifta stúlkur undir sextán ára aldri." Tvær ungar stúlkur, Sahar Gul og Lal Bibi, hafa nýlega vakið viðbrögð í Afganistan og umræðu í alþjóðasamfélaginu er þær bentu á að þessi umræddu lög væru ekki virt, að sögn Ingu Dóru. "Önnur þessara stelpna var þrettán ára þegar hún var seld í hjónaband til ofbeldisfulls eiginmanns og ofbeldisfullrar tengdafjölskyldu. Hún var pyntuð og henni var nauðgað og haldið í gíslingu. Fjölskylda hennar fékk hana loks lausa og með hennar hjálp og mannréttindasamtaka er hún búin að leggja fram kæru á hendur tengdafjölskyldunni en ekki er búið að dæma í málinu. Það er okkar allra að fylgjast með svona málum. Að stelpur undir átján ára aldri skuli stíga fram og bjóða kerfinu og kúguninni birginn vekur manni von og við verðum að sýna þeim samstöðu," segir hún og bendir á meiri upplýsingar á síðunni www.unwomen.is. Inga Dóra segir myndir af Íslendingum, íklæddum rétta litnum, hafa farið héðan á allar landsskrifstofur UN Women, átján talsins, síðast þegar appelsínuguli dagurinn var. "Þær vöktu athygli," segir hún "sem sannar að við getum sameinast um að sýna lit."
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Sjá meira