Innlent

Togarar sigla í land fyrir Sjómannadaginn

Togarar, sem hafa verið á karfaveiðum á Reykjaneshrygg að undanförnu, hættu veiðum í gærkvöldi og i nótt og sigldu áleilðis til lands, til að áhafnirnar verði komnar í land fyrir Sjómannadaginn um helgina.

Skip af öðrum fjarlægum miðum eru líka lögð af stað heim og verður allur flotinn í landi um helgina. Um sex leytið í morgun voru liðlega 200 skip og bátar enn á sjó við landið, en á góðum degi eru um og yfir 800 fleytur á sjó samtímis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×