Eðlilegt að fólk velti kostnaðinum fyrir sér 14. nóvember 2012 14:57 Guðmundur Magnússon fyrir framan Alþingi í gær.
Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segir það sé hluti af starfi bandalagsins að fara í auglýsingaherferðir, eins og þá sem var farið í í gær í sambandi við gjörning á Austurvelli þar sem markmiðið var að vekja athygli á fáttækt í landinu. Hann segist ekki vera með það á hreinu hver kostnaðurinn við þetta sé. Í gær birti Öryrkjabandalagið heilsíðuauglýsingar í dagblöðum, sérprentaði gula borða, leigði hljóðkerfi og fékk auglýsingastofu til að hanna gjörninginn á Austurvelli. Þá sá almannatengslastofa um kynningu í fjölmiðlum. Gera má ráð fyrir því að kostnaðurinn við þetta hlaupi á nokkrum milljónum. „Þetta er bara hluti af því sem okkur ber að gera," segir Guðmundur í samtali við fréttastofu. Spurður hvort að þetta hafi kostað nokkra þúsund kalla, segir hann það svo vera. „Jú að sjálfsögðu, þú veist það sjálfur, svona heilsíðuauglýsing kostar. Það er bara þannig að það verður að gera það til að ná eyrum og augum fólks, sérstaklega þessa ráðamanna. Við höfum ekki fengið svo mikla fjölmiðlaathygli, það var einhver sem sagði: Afhverju var ekki talað meira um þetta þegar skerðingarnar voru? En við reyndum þá, mótmæltum, sendum ályktanir á fjölmiðla," segir Guðmundur og tekur fram bandalagið hafi fengið lítil viðbrögð. En finnst honum eðlilegt að öryrkjar, og aðrir, velti því fyrir sér hvort að bandalagið eigi að eyða milljónum í auglýsingakostnað fyrir gjörning eins og þennan? „Auðvitað er það eðlilegt, það á vera svoleiðis. Við erum nýbúin að halda aðlfund þar sem allir reikningar voru samþykktir - þetta er bara inni í okkar fjárhagsáætlun. Það er eðlilegt að fólk velti þessu fyrir sér, við rekum bandalagið af skynsemi og aðhaldi og höfum alltaf gert," segir hann. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Öryrkjabandalagið fer í auglýsingaherferð líkt og þessa í gær. „Við fórum í ansi mikla kynningu í haust, það voru einhverjar milljónir sem fóru í það. Þetta er bara hluti af því sem okkur ber að gera." Hann segir að ekki sé búið að taka til hvað auglýsingaherferðin í gær hafi kostað. „Það er ekki búið að gera það upp og það er ástæðulaust að setja tölur út í loftið, en það voru ekki margar milljónir," segir hann. „Það var mikið af sjálfboðaliðum sem unnu að þessu og margir sem komu og unnu störfin í kringum gjörninginn í gær. En það var hönnunarkostnaður á auglýsingum og annað sem aldrei verður hjá komist - ef maður ætlar að gera hlutina vel," segir hann að lokum.Frétt Stöðvar 2 frá því í gærkvöldi.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira