Erlendu drengirnir láta reyna á flóttamannasamning SÞ 29. maí 2012 18:38
Aðeins einu sinni hefur reynt á grein í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna (SÞ) sem kveður á um að ekki skuli refsa þeim sem koma ólöglega inn í land ef lífi þeirra var ógnað. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður furðar sig á þessu. Í 31. grein flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna segir meðal annars að aðildarríkin skulu ekki beita refsingum gagnvart flóttamönnum vegna ólöglegrar komu þeirra til landsins ef þeir koma beint frá landi, þar sem lífi þeirra eða frelsi var ógnað gefi þeir sig tafarlaust fram við stjórnvöld. Á þessa grein æltar Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður að láta reyna í máli drengjanna frá Marakkó og Alsír sem dæmdir voru í 30 daga fangelsi í lok apríl fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum en hann hefur áfrýjað dómi yfir þeim til Hæstaréttar. Hann segir að þótt dæmt hafi verið í tugum mála hælisleitanda hér á landi hafi fyrst verið látið reyna á þessa grein í febrúar. "Þar var látið reyna á 31. greinina og dómarinn taldi ekki rétt að beita henni. Sá sem bar það fyrir sig kom til landsins, var settur inn í leitarherbergi og þaðan var hann leiddur inn í lögregluvarðstofu og þá óskaði hann eftir hæli sem flóttamaður. Það taldi dómarinn of seint." Ragnar furðar sig á því og segir þá túlkun hvorki í samræmi við túlkun á þessu ákvæði annar staðar í heiminum né samkvæmt leiðbeiningum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna." Hann segir að þegar flóttamenn koma til lands þurfi að kanna ýmis skilyrði, meðal annars hvort flóttamaðurinn hafi tafarlaus óskað eftir hæli eftir að hann kom til landsins. "Það þýðir ekki að hann eigi gera það við fyrsta mann sem hann hittir, tollgæslumann eða annan heldur verður hann að vera nokkuð öruggur um að hann sé kominn inn fyrir landamærin og að honum verði ekki vísað umsvifalaust á brott. Það gerði þessi maður sem málið fjallaði um 28. febrúar. Það mál er nú fyrir Hæstarétti þannig vera kann að við fáum leiðbeiningar frá Hæstarétti í því máli um einhverja hluti alla vega."
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira