Innan við eitt prósent barna býr við skort 29. maí 2012 05:00 Íslensk börn eru tuttugu sinnum líklegri til að búa við skort ef báðir foreldrar þeirra eru atvinnulausir. nordicphotos/getty
Innan við eitt prósent íslenskra barna býr við efnislegan skort samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan er hluti af rannsóknarritröð sem nefnist Report Card, eða einkunnaspjaldið. Í henni er barnafátækt í velmegandi ríkjum skoðuð. Þrettán milljónir barna innan Evrópusambandsins, í Noregi og á Íslandi skortir margvísleg atriði sem nauðsynleg eru fyrir þroska þeirra og velferð. Hlutfallið var lægst á Íslandi, 0,9 prósent. Börn foreldra með litla menntun og börn innflytjenda eru fjórum sinnum líklegri en önnur hér á landi til að líða skort og börn einstæðra foreldra fimm sinnum líklegri til þess. Berskjaldaðasti hópurinn er börn atvinnulausra, en tæp átján prósent barna sem eiga tvo atvinnulausa foreldra líða efnislegan skort. Hlutfall barna sem búa við skort er undir þremur prósentum á öllum Norðurlöndunum. Í mörgum öðrum ríkjanna er hlutfallið um og yfir tíu prósent. Þá var hlutfallsleg fátækt í 35 efnuðum hagkerfum skoðuð og kom í ljós að þrjátíu milljónir barna búa við hlutfallslega fátækt í þessum ríkjum. 4,7 prósent íslenskra barna lifa undir fátæktarmörkum samkvæmt skýrslunni, en það er einnig lægsta hlutfall allra ríkja í skýrslunni. - þeb
Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Starfsfólk bráðamóttöku óttist um heilsu sína og öryggi Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Vill að virðisaukaskattur á barnavörur verði látinn fjúka Starfsfólk á bráðamóttöku segist óttast um öryggi sitt Afplánaði of lengi en fær ekki krónu Hæstiréttur fjallar um hryðjuverkamálið svokallaða í dag Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Spila styrktarleik til minningar um Patrek: „Hans er sárt saknað“ Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok Sjá meira