Leita leiða til að nýta regnvatn Karen Kjartansdóttir skrifar 27. maí 2012 21:30
Leita á leiða til að nýta regnvatn í meira mæli. Stærstum hluta þess er nú veitt í skólp og út í sjó þó hagkvæmara sé að endurnýta það til að fegra eða spara. Þetta segir dósent í umhverfisverkfræði sem vinnur að því að finna blágrænar lausnir. Ógegndræpir fletir í borgarumhverfinu, eins og þök, götur og gangstéttir, raska örlögum regnvatns. Það síast því ekki ofan í jörðina heldur rennur ofan í skólplangir og svo til sjávar. Virði vatns í heiminum fer vaxandi og því er í auknum mæli reynt að líta svokallaðra blágrænna lausna. Með þeim er reynt að nýta regnvatn í þágu grænna svæða. Þetta getur bæði verið umhverfisvænt en líka hagkvæmt. Í Háskóla Íslands var fyrir skömmu samþykkt ný sjálfbærnistefna. Leitað er blágrænna lausna fyrir regnvatn sem fellur á Háskólasvæðinu. „Við erum þá að nýta vatnið sem fellur á þökin staðbundið, í stað þess að flytja það beint í sjóinn með skólpræsikerfinu," segir Hrund Andradóttir, dósent í umhverfisverkfræði við Háskóla Íslands. Hrund nefnir sem dæmi að til að mynda væri hægt að tyrfa þök á Háskólasvæðinu í meira mæli ekki síst á húsnæði verkfræðideildarinnar sem nú þegar minnir á burstir torfbæjanna. Þá henti þak Háskólabíós einnig vel fyrir tyrfingu. Nú þegar er hús tæknigarðs með torfþaki. Kostir slíkra þaka segir meðal annars vera að þau minnki og hreinsi afrennslisvatn, auki einangrun og spari orku, endist betur en venjuleg þök og sé auk þess hluti að menningarlegum arfur Íslendinga. Þá segir hún að regnvatn af húsþökum sem nú rennur í skólplagnir væri til dæmis hægt að safna í tanka nýta til að veita í klósett. Þá bendir hún á nota megi svokallaða svelgi eða dældir til að safna og flytja regnvatn, en hér má sjá hugmyndir hennar á grófan hátt. Þetta nýtist einkum til að hreinsa afrennsli og endurhlaða grunnvatsstöðu. Þá væri hægt að safna regnvatni í tanka og nýta í klósett í stað þess að flytja það beint í sjóinn ónýtt. En eitthvað hlýtur svona lagað að kosta. „Það er auðvitað alltaf einhver kostnaður sem fellst í því að breyta núverandi borgarumhverfi. En hins vegar fellst mikill kostnaður í því að byggja ný hverfi með hefðbundnu skólplagnakerfi." Kostir við blágrænar lausnir séu líka margar. Þær dragi úr álagi á skólphreinsistöðvar, og dragi úr flóðahættu sem getur myndast í asahláku og með þeim sé hægt að gera náttúrulegra og fjölbreyttara borgarumhverfi og auki öryggi í vatnsframboði.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent „Ríkið á stóra sök á þessu“ Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Fleiri fréttir Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði Sjá meira