Svaf fyrir framan Ráðhúsið í Þorlákshöfn - vildi spara pening 6. febrúar 2012 11:44
Lögreglan á Selfossi sinnti heldur sérkennilegu útkalli í nótt. Þeim barst tilkynning um mann með svefnpoka sem væri að leggja sig til við Ráðhúsið í Þorlákshöfn. Þegar á vettvang var komið fann lögreglan manninn sem sagðist vera frá Búlgaríu og væri í atvinnuleit. Hann hafði farið um suðvesturhorn landsins en ekki orðið ágengt með að fá vinnu. Maðurinn hafði næga fjármuni til að framfleyta sér og með vegabréf. Hins vegar var hann að drýgja peninginn með því að spara sér að kaupa gistingu á meðan hann væri ekki kominn með atvinnu. Síðdegis á laugardag um klukkan sex var brotist inn í íbúðarhús við Sólvelli á Stokkseyri og þaðan stolið 32" Toshiba sjónvarpstæki. Íbúar hússins höfðu verið á ferðalagi og fengið mann til að fylgjast með húsinu. Sá tók eftir að útidyrahurð var opin og við nánari skoðun sást að rúða hafði verið brotin með steini. Ekki er vitað hver var þarna að verki og biður lögreglan á Selfossi þá sem hafa orðið varir við óviðkomandi á staðnum í umrætt sinn að hringja í síma 480 1010. Svo var tilkynnt um skemmdarverk í sumarbústað í landi Hæðarenda í Grímsnesi. Allar rúður bústaðarins utan ein voru brotnar. Eigandi hafði ekki komið í húsið frá því 1. nóvember síðastliðinn. Engar vísbendingar eru um hverjir hafi brotið rúðurnar en ef einhver getur veitt upplýsingar eru þær vel þegnar í síma 480 1010. Húsleit var gerð í íbúðarhúsi í Þorlákshöfn í síðustu viku. Lögreglu höfðu borist ábendingar um að þar væri einstaklingur sem varslaði fíkniefni sem hann útvegaði öðrum. Við leitina fannst lítilræði af kannabis og amfetamíni. Einstaklingurinn viðurkenndi brot sitt og mun mál hans verða sent til ákæruvalds sem tekur ákvörðun um framhald. Einn ökumaður var kærður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og annar fyrir hraðakstur.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira