Unnið að hættumati vegna eldgosa í byggð 15. ágúst 2012 09:30 Hér sést bjarminn frá eldstöðvunum á Fimmvörðuhálsi að baki Réttarfells. Fyrir liggur hættumat vegna Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls, sem mun nýtast við vinnuna. Fréttablaðið/Vilhelm
Undirbúningur er hafinn við gerð frekara hættumats vegna eldgosa víðs vegar á Suðurlandi. Næstu þrjú ár leggur Ofanflóðasjóður 34 milljónir króna árlega í vinnuna, sem verður unnin af almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, Veðurstofunni, Háskóla Íslands, Landlækni og fleiri aðilum. Búið er að setja saman vinnuhópa vegna verkefnisins, en Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, segir málið það umfangsmikið að eiginleg vinna sé ekki hafin enn. Áhersla verður lögð á hættumat á Reykjanesi, höfuðborgarsvæðinu, Vestmannaeyjum, byggð svæði norðan Vatnajökuls, Bárðarbungu og Öræfajökuls. „Þetta eru nokkur svæði sem geta verið í bráðri hættu ef það fer að gjósa,“ segir Víðir. Áætlunin gerir ráð fyrir að unnið verði að fjórum verkefnum á næstu þremur árum: úttekt á þekkingu á íslenskum eldstöðvum, forgreiningu á áhættu vegna flóða samfara eldgosum, forgreiningu á sprengigosum á Íslandi og forgreiningu á eldgosum sem valdið geta miklu eignatjóni, það er eldgosum nálægt þéttbýli og alþjóðlegum flugvöllum á Íslandi. Víðir segir ljóst að heildarkostnaður verkefnisins hlaupi á hundruðum milljóna króna. Almannavarnir annast framkvæmd viðbragðsáætlanakerfis en kerfið byggir á hættumati hvers staðar og verður unnið í samvinnu við heimamenn. „Við höfum lagt áherslu á nokkra staði þar sem menn telja hættuna meiri en annars staðar,“ segir Víðir. „Það eru mest fjöll undir jöklum og þar sem flóðahætta er. Við reiknum með að leggja fram fyrstu tillögur fyrir áramót.“ Hagsmunaaðilar innan samgöngu- og orkugeirans taka þátt í fjármögnun verkefnisins næstu þrjú ár, auk Ofanflóðasjóðs. Hinn 28. febrúar síðastliðinn samþykkti Alþingi breytingar á lögum um sjóðinn, sem gerir honum kleift að taka þátt í fjármögnun hættumats vegna íslenskra eldfjalla samhliða styrkjum til sveitarfélaga vegna framkvæmda við ofanflóðavarnir. Undirbúningur fyrstu tveggja verkefnanna hófst síðastliðið haust og er hann vel á veg kominn. Undirbúningur vegna vinnu við seinni verkefnin tvö mun hefjast í haust. sunna@frettabladid.is svavar@frettabladid.is
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira