Fjöldi dýra drepist í Miklakonungsdal 15. ágúst 2012 08:30 Sjór og há fjöll girða dalinn af svo þar leikur eldurinn lausum hala. nordicphotos /afp „
Ástandið er hrikalegt,“ segir Vera Asscheman, íbúi á spænsku eyjunni La Gomera, einum af Kanaríeyjum. Þar hafa skógareldar logað í níu daga og ekki sér fyrir endann á þeim. „Slökkviliðsmenn voru að segja að þeir muni ekki ráða niðurlögum eldanna næsta sólarhringinn,“ segir hún. Asscheman býr í höfuðstað eyjarinnar, San Sebastian, sem er ekki langt frá eldunum. Helsti vandinn er sá að mestu eldarnir eru í dalnum Valle Gran Rey, eða Miklakonungsdal, en hann er djúpur og einungis einn vegur liggur í hann. „Eins og gefur að skilja er sá vegur lokaður og eina leiðin sem menn hafa til að komast að eldinum er úr lofti. Síðan kom sú staða upp fyrir tveimur dögum að menn þóttust hafa slökkt eldana svo slökkviliðsflugvélarnar voru sendar til meginlands Spánar. En þá gerði mikið rok og eldur kom upp á nýjan leik og þá tók það heilan sólarhring að fá vélarnar aftur á svæðið. Svo þetta var mjög misráðið.“ Það hefur þurft að flytja um fimm þúsund manns sjóleiðina úr dalnum. „Það hafa ekki orðið slys á fólki svo ég viti en í þessum dal er nokkuð dýralíf, þar eru til dæmis margar geitur. Þar að auki eru margir með nokkuð af skepnum í þar til gerðum görðum og búrum svo þetta er mikill harmleikur fyrir marga og að sjálfsögðu er mjög þungt yfir fólki hér í bænum.“ Íbúar á La Gomera hafa lifibrauð sitt af ferðamennsku og segir Asscheman fólk hafa miklar áhyggjur af afleiðingum skógareldanna til lengri tíma. „Hér kemur fólk aðallega til þess að njóta fallegrar náttúru. Ég settist hér að fyrir fimmtán árum og það sem heillaði mig mest var náttúrufegurðin. En það er ekki við því að búast að margir leggi leið sína hingað til að njóta náttúrufegurðarinnar eftir þennan harmleik svo við höfum öll áhyggjur af lifibrauðinu.“ Hún sagðist ekki vita af neinum Íslendingum sem væru þar á ferð. „En ég veit að þeir hafa verið fjölmennir hér svo það kæmi mér ekki á óvart,“ segir hún. jse@frettabladid.is
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira