Tæplega 400 leigjendur eiga í vandræðum með framfærslu 15. ágúst 2012 09:00 Umboðsmaður skuldara metur það svo að 192 þeirra Reykvíkinga sem leitað hafa til embættisins hafi litla sem enga greiðslugetu. fréttablaðið/vilhelm
Fjöldi leigjenda er í vanda með að standa undir framfærslu sinni, samkvæmt upplýsingum frá umboðsmanni skuldara. Alls telur stofnunin að 341 leigjandi hafi litla sem enga greiðslugetu. Við það bætast 53 sem eru í félagslega leigukerfinu. Svanborg Sigmarsdóttir, upplýsingafulltrúi umboðsmanns skuldara, segir að stofnunin reikni leiguverð inn í framfærslukostnað en ekki afborganir á fasteignalánum. Svanborg segir því að fjöldi leigjenda í þessari stöðu sé því líklega aðeins ofmetinn. „Megnið af leigjendum er á mörkum þess að vera undir framfærsluviðmiðum. Ef þeir spara í matarinnkaupum tekst þeim að halda sér fyrir ofan mörkin.“ Umboðsmaður varaði við því í vor að um 200 fjölskyldur gætu misst húsnæði sitt vegna greiðsluvanda. Fundað hefur verið með velferðarráðherra og stærstu sveitarfélögunum um málið. Fréttablaðið óskaði upplýsinga um fjölda þeirra sem leitað hafa til umboðsmanns skuldara en misst húsnæði sitt. Stofnunin hefur gert 1.024 samninga og af þeim 619 sem hafa verið yfirfarnir núna eru 62 tilfelli þar sem fólk hefur þurft að setja hús sitt á sölu. Svanborg segir þetta ekki alveg tæmandi lista, en um 10 prósent þeirra sem leita til stofnunarinnar fá synjun um samninga. „Mjög algengt er að fólk hafi ekki skilað inn skattframtali eða gögnum. Sumir eru með atvinnurekstur og hafa ekki skilað inn gögnum hvað hann varðar. Annar hópur sem fær synjun skuldar of mikinn virðisaukaskatt. Þá er í sumum tilfellum auðsjáanlegt að viðkomandi hefur ekki haft greiðslugetu þegar lánið var tekið.“kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira