Ekki hægt að tala um fólksflótta héðan 4. apríl 2012 05:30 Brottflutningur af landinu er svipaður og á síðustu samdráttarskeiðum í sögunni. Fréttablaðið/pjetur
Brottflutningur frá Íslandi er síst meiri nú en á öðrum samdráttarskeiðum samkvæmt nýrri skýrslu. Atvinnuleysi á Evrópska efnahagssvæðinu hefur áhrif á að hvorki Íslendingar né útlendingar fari í meiri mæli til annarra landa. Því fer fjarri að fólksflótti sé brostinn á frá Íslandi. Brottflutningur er síst meiri en hann hefur verið önnur samdráttarskeið í Íslandssögunni. Þetta kemur fram í skýrslu Ólafar Garðarsdóttur, prófessors við menntavísindasvið Háskóla Íslands og mannfjöldasérfræðings, sem hún gerði fyrir velferðarráðuneytið. „Frá því að samdráttarskeiðið hófst hér á landi í árslok 2008 hefur þeirri skoðun verið haldið mjög á lofti að brostinn sé á fólksflótti frá landinu sem muni hafa alvarlegar félagslegar og efnahagslegar afleiðingar. Í samhenginu hefur oft verið vísað til Vesturheimsferðanna á 19. öld og til efnahagskreppunnar í Færeyjum upp úr 1990 en þá fækkaði íbúum í Færeyjum um rúm níu prósent á sex ára tímabili. Ljóst er að slíkur samanburður er fjarri sanni,“ segir í skýrslunni. Árið 2009 fækkaði landsmönnum um hálft prósentustig eftir mikla fólksfjölgun árin þar á undan. Árin 2010 og 2011 fjölgaði landsmönnum hins vegar á nýjan leik þótt fjölgunin hefði verið mun minni en flest ár síðustu áratugina, eða 0,3 og 0,4 prósent. Fólksfjölgun var hröð fyrstu ár þessarar aldar og á þensluskeiðinu um miðbik áratugarins varð fólksfjölgun hér meiri en í nokkru öðru Evrópulandi. Þannig fór fólksfjölgun yfir tvö og hálft prósent árin 2007 og 2008. „Í ljósi þess hve margir útlendingar fluttu til landsins í aðdraganda hruns verður að teljast athyglisvert hversu lítill brottflutningurinn er í hópi erlendra ríkisborgara. Þannig var fjöldi aðfluttra umfram brottflutta erlenda ríkisborgara rúmlega 16.000 árin 2005 til 2008. Þótt flutningsjöfnuðurinn hafi vissulega verið neikvæður í þessum hópi nú á samdráttarskeiðinu er fjöldi brottfluttra erlendra ríkisborgara innan við 3.000 fleiri en aðfluttir öll árin 2009 til 2011.“ Áhrif samdráttarskeiðsins á samsetningu innflytjendahópsins hafa einkum verið þau að karlmönnum hefur fækkað. Ekki þarf að koma á óvart að brottflutningur íslenskra ríkisborgara sé ekki meiri nú en áður. Það stafi af því að atvinnuleysi sé mikið alls staðar á Evrópska efnahagssvæðinu, að undanskildum Noregi, en þangað fara flestir Íslendingar sem flytjast brott. Atvinnuleysið í Evrópu hefur einnig áhrif á brottflutning erlendra ríkisborgara. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Sjá meira