Innlent

Kínverskar silkhænur urðu hundi að bráð

Hundur í Keflavík þefaði uppi og drap í gær hænur þegar hann slapp úr pössun. Lögreglu var tilkynnt um málið en þegar hún kom á vettvang hafði hundinum tekist að drepa þrjár kínverskar silkihænur sem voru á baklóð húss í bænum. Hundurinn var á bak og burt þegar lögreglu bar að garði.

Lögreglan á Suðurnesjum áréttar að lausaganga hunda sé með öllu óheimil en nokkuð hefur verið um svipuð mál undanfarið. Á dögunum beit laus hundur barn í Reykjanesbæ og í öðru tilviki ók maður á hund sem hljóp í veg fyrir bíl hans á Miðnesheiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×