Innlent

Verðandi biskup prédikar í kvennamessu

Agnes M. Sigurðardóttir
Agnes M. Sigurðardóttir
Verðandi biskup yfir Íslandi, séra Agnes M. Sigurðardóttir mun prédika í kvennamessu sem haldin verður við Þvottalaugarnar í Laugardal á kvenréttindadaginn 19. júní næstkomandi klukkan átta. Kvennakirkjan stendur fyrir guðsþjónustunni í samstarfi við Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands.

Auk prédikunar séra Agnesar mun Ásdís Þórðardóttir leika á trompet. Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng og frumflytur nýjan sálm eftir Iðunni Steinsdóttur. Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Þá mun Hópur kvenpresta mun taka þátt í messunni og fagna þannig kjöri fyrsta kvenbiskups yfir Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×