Innlent

Tóku skóflustungu að nýjum framhaldsskóla í Mosfellsbæ

Í dag var fyrsta skóflustungan að byggingu Framhaldsskólans í Mosfellsbæ við Bjarkarholt tekin. Fyrsti áfangi verkefnisins gerir ráð fyrir fjögur þúsund fermetra byggingu og búist er við að 400 til 500 nemendur sæki skólann.

Það voru þau Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri, sem í sameiningu tóku fyrstu skóflustunguna nú eftir hádegið.

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ var stofnaður fyrir fjórum árum og í vor útskrifuðust þaðan fyrstu stúdentarnir. Kennt hefur verið í bráðabirgðahúsnæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×