Öryrki stefnir íslenska ríkinu Erla Hlynsdóttir skrifar 26. nóvember 2012 20:09
Öryrki hefur stefnt íslenska ríkinu og Tryggingastofnun vegna vangoldinna bóta. Mánaðarlegar bætur þyrftu að vera tvöfalt hærri til að ná almennu neysluviðmiði sem ríkið sjálft hefur sett. Öryrkjabandalag Íslands stendur að baki Dagrúnu Jónsdóttur sem hefur stefnt ríkinu til að greiða sér 2,1 milljón króna sem hún segir að vanti upp á bætur sínar það sem af er ári. Á vef velferðarráðuneytisins er hægt að reikna út neysluviðmið. Dagrún býr ein, á höfuðborgarsvæðinu, og samkvæmt ráðuneytinu ætti hún því að eyða rúmlega 66 þúsund krónum í hvers kyns neyslu á mánuði, 36 þúsund í þjónustu og öðru eins í tómstundir og afþreyingu. Heildarútgjöld fólks í hennar stöðu, fyrir utan húsnæði, eru áætluð 223 þúsund krónur. Þegar húsnæðinu er bætt við er mánaðarlega upphæð orðin tæp 292 þúsund. Dagrún fær hins vegar tæp 203 þúsund í bætur á mánuði, fyrir skatt, sem er öllu lægra en viðmiðið. Til að fá þá upphæð útborgaða þarf að vera með tæpar 400 þúsund í tekjur fyrir skatt, tvöfalt meira en Dagrún fær. Öryrkjabandalagið fjármagnar málssóknina og var mál Dagrúnar valið sem prófmál eftir mikla yfirlegu. „Þetta snýst um að vera ekki dæmdur í ævilanga fátækt," sagði Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalagsins í fréttatíma Stöðvar 2 í kvöld. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Öryrkjabandalagið stendur að baki málaferlum en árið 2000 féll hinn svonefndi öryrkjadómur sem færðu öryrkjum miklar kjarabætur. Guðmundur segir að ef dómur í þessu máli fellur Dagrúnu í vil skipti það sköpum fyrir alla bóta- og lífeyrisþega.Ítarlegra viðtal við Guðmund vegna málsins má nálgast hér að ofan.Úr fréttatíma Stöðvar 2.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira