Franska lögreglan handtók Karabatic og félaga Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. september 2012 18:29 Karabatic er hér leiddur út í lögreglubíl eftir leikinn í dag. Nordic Photos / AFP
Samkvæmt frönskum fjölmiðlum voru tólf manns handteknir í dag í tengslum við veðmálasvindl í franska handboltanum. Nikola Karabatic, leikmaður Montpellier, er einn þeirra en hann var handtekinn ásamt fleirum eftir leik liðsins gegn Paris Saint-Germain í dag. Aðrir sem voru handteknir eru Luka Karabatic, bróðir Nikola, og Samuel Honrubia. Þeir eru grunaðir um að hafa hagrætt úrslitum í leik í frönsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Montpellier var þegar búið að tryggja sér franska meistaratitilinn þegar liðið tapaði óvænt fyrir Cesson-Rennes, 31-28, þann 12. maí síðastliðinn. Eiginkonur, kærustur og aðrir ættingjar leikmanna Montpellier eru sagðir hafa hagnast um allt að 40 milljónir króna fyrir að veðja á sigur Cesson-Rennes fyrir leikinn. Meðal annarra sem voru handteknir í dag voru fimm leikmenn Montpellier - Wissem Hmam, Michael Robin, Dragan Gajic og Primoz Prost auk Nikola Karabatic. Honrubia er í dag leikmaður PSG en hann kom til félagsins frá Montpellier í sumar. Montpellier hefur unnið franska meistaratitilinn þrettán sinnum á síðustu fimmtán árum og þá er árangur franska landsliðsins undanfarin ár öllum handboltaáhugamönnum vel kunnur. PSG vann Montpellier örugglega í dag, 38-24. Róbert Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir PSG en Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað að þessu sinni.
Handbolti Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Fleiri fréttir Bein útsending: Dregið í riðla á HM í Þýskalandi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira