Til stóð að senda laumufarþegann úr landi BBI skrifar 24. júlí 2012 12:10 Mynd úr safni. Mynd/Stefán
Hælisleitandinn sem fannst um borð í rannsóknarskipinu Knorr á leið til Bandaríkjanna í fyrrakvöld hafði áður fengið ákvörðun Útlendingastofnunar um að hann yrði sendur úr landi til tiltekins Evrópulands. Það mál er nú í kæruferli í innanríkisráðuneytinu. Þetta segir Kristín Völundardóttir með þeim fyrirvara að maðurinn sé sá sem hann segist vera. „Það sem gerist, komi hann til baka, er að málið fer í bið eftir niðurstöðu úr ráðuneytinu," segir Kristín og telur jafnvel líkur á að málinu verði flýtt. Samkvæmt upplýsingum frá skipamiðlara stendur ekki til að snúa skipinu við en hins vegar er líklegt að maðurinn verði sendur til baka þegar skipið nær höfn þar ytra. Maðurinn laumaðist að öllum líkindum um borð í skipið þegar það lá við festar við Miðbakkann í Reykjavík. Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis ræddi við tvo flóttamenn á Fit Hostel fyrir helgi þar sem þeir fullyrtu að félagi þeirra væri á leið frá Íslandi um borð í skipi. Ekki ber á öðru en að þarna sé sá maður á ferðinni. Ekki hefur komið fram hvort maðurinn var undir langa siglingu búinn, en siglingin milli landanna tekur viku. Því hefur maðurinn þurft að vera einhverjum vistum búinn fyrir slíka siglingu. Ef maðurinn hefði slysast upp í t.d. flutningaskip frá Eimskipum hefði það getað haft slæmar afleiðingar fyrir félagið. „Þá væri þetta stórt mál. En af því þetta er bandarískt rannsóknarskip þá hefur þetta engar sérstakar afleiðingar," segir Björn Hólmsteinsson, talsmaður skipamiðlarans TVG Zimsen cruise agency.
Tengdar fréttir Laumufarþegi fannst um borð í skipi frá Íslandi Laumufarþegi fannst um borð í rannsóknarskipinu Knorr, sem var á leiðinni frá Íslandi Bandaríkjanna. Þetta staðfestir Kristín Völundardóttir, forstjóri útlendingastofnunar í samtali við Vísi. Maðurinn fannst í fyrrakvöld. Talið er að þarna sé um að ræða hælisleitanda sem hafi verið hér á landi. Fréttastofa ræddi við tvo flóttamenn á Fit Hostel á dögunum þar sem fram kom í máli þeirra að félagi þeirra væri á leið frá Íslandi um borð í skipi. 24. júlí 2012 11:02 Auðvelt að laumast inn í flugvélina Hælisleitendurnir sem fundust um borð í flugvél Icelandair fyrir um tveimur vikum segja að auðvelt hafi verið að komast fram hjá öryggisgæslunni og inn í vélina. 21. júlí 2012 10:00 "Núna er vinur okkar á leið til Ameríku í skipi“ Hælisleitendur sem fundust um borð í flugvél fyrir tveimur vikum segja að vini sínum hafi tekist að koma sér úr landi og sé nú á leið til Bandaríkjanna. Þeir eru sjálfir staðráðnir í að reyna aftur að komast úr landi. 20. júlí 2012 18:30 Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Fleiri fréttir „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið Sjá meira
Laumufarþegi fannst um borð í skipi frá Íslandi Laumufarþegi fannst um borð í rannsóknarskipinu Knorr, sem var á leiðinni frá Íslandi Bandaríkjanna. Þetta staðfestir Kristín Völundardóttir, forstjóri útlendingastofnunar í samtali við Vísi. Maðurinn fannst í fyrrakvöld. Talið er að þarna sé um að ræða hælisleitanda sem hafi verið hér á landi. Fréttastofa ræddi við tvo flóttamenn á Fit Hostel á dögunum þar sem fram kom í máli þeirra að félagi þeirra væri á leið frá Íslandi um borð í skipi. 24. júlí 2012 11:02
Auðvelt að laumast inn í flugvélina Hælisleitendurnir sem fundust um borð í flugvél Icelandair fyrir um tveimur vikum segja að auðvelt hafi verið að komast fram hjá öryggisgæslunni og inn í vélina. 21. júlí 2012 10:00
"Núna er vinur okkar á leið til Ameríku í skipi“ Hælisleitendur sem fundust um borð í flugvél fyrir tveimur vikum segja að vini sínum hafi tekist að koma sér úr landi og sé nú á leið til Bandaríkjanna. Þeir eru sjálfir staðráðnir í að reyna aftur að komast úr landi. 20. júlí 2012 18:30